Ronhill mætir kröfum hlaupara 24. apríl 2013 06:00 Berglind Þóra Steinarsdóttir hjá Danssporti. Mynd/Stefán
Söluaðilar okkar hafa tekið Ronhill afar vel. Þeir vita hvað sérhæfing er mikilvæg á markaði þar sem viðskiptavinurinn gerir sífellt meiri kröfur um efni og lausnir,“ segir Berglind Þóra Steinarsdóttir hjá Danssporti, sem er umboðs- og dreifingaraðili Ronhill á Íslandi. „Ronhill er íþróttavörumerki sem sérhæfir sig í að mæta kröfum hlaupara og hefur framleitt og hannað hlaupafatnað síðan 1970,“ útskýrir Berglind um vörumerkið sem nefnt er eftir stofnanda þess, dr. Rons Hill, sem árið 1970 varð fyrstur Breta til að sigra í Boston-maraþoninu. „Ronhill hefur frá upphafi leitast eftir að hugsa fyrst og fremst um þarfir hlauparans. Afraksturinn eru fjórar sérhæfðar fatalínur fyrir hlaupara og fatnaðurinn er á mjög góðu verði hjá söluaðilum okkar. Má þar nefna hlaupajakka fyrir fullorðna frá 9.990 krónum og hlaupabuxur frá 7.990,“ upplýsir Berglind. Fatalínur Ronhill samanstanda af Vizion-götulínu, Trail-utanvegarlínu, Pursuit-hópa- og liðalínu og Advance-keppnisfatnaði fyrir þá sem vilja fara hratt yfir. „Vizion er litaglaður fatnaður með endurskinsmerkjum og fæst einnig með LED-ljósabúnaði,“ segir Berglind og bætir við að öll efni séu sértaklega létt og þægileg. „Trail-línan mætir kröfum um vasa fyrir gel og annan nauðsynlegan útbúnað þegar tekist er á við erfiðar aðstæður og veður sem getur snögglega breyst. Með Pursuit er svo loks komin lausn fyrir frjálsíþróttafélög, hlaupahópa og þá sem leita eftir íþróttafatnaði fyrir heildina en þar fæst sama línan í barna-, kven- og herrastærðum,“ segir Berglind og skorar á hlaupahópa og félög að leita tilboða hjá Danssporti. Helstu söluaðilar Ronhill eru Afreksvörur í Glæsibæ, Atlas göngugreining á Engjavegi og Fjölsport í Firðinum. Nánari upplýsingar um þjónustu og söluaðila má sjá á danssport.is. Danssport ehf. er í Sundaborg 1. Sími 553 0700. Netfang er danssport@danssport.is.
Mest lesið Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Viðskipti innlent Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Viðskipti innlent Vill að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að Landsbankinn verði samfélagsbanki að þýskri fyrirmynd Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Botninn dottinn úr í kauphöll New York Viðskipti erlent Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Viðskipti innlent Lausnamiðuð ferilskrá og að þora Atvinnulíf Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira
Vill að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að Landsbankinn verði samfélagsbanki að þýskri fyrirmynd Viðskipti innlent
Vill að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að Landsbankinn verði samfélagsbanki að þýskri fyrirmynd Viðskipti innlent