Hressilegt heimabrugg Trausti Júlíusson skrifar 15. febrúar 2013 11:30
Tónlist. Gímaldin og Eva Hauksdóttir. Evulög. Eigin útgáfa Evulög hefur að geyma lög Gímaldins við texta Evu Hauksdóttur. Gímaldin á að baki nokkrar plötur, en Eva er afkastamikill bloggari. Gímaldin syngur sjálfur á plötunni, en stærstan hluta fær hann samt aðra söngvara til að syngja: Karl Hallgrímsson syngur tvö lög, Trausti Laufdal þrjú, Lára Sveinsdóttir, Rúnar Þór og Megas, pabbi Gímaldins, eitt hvert. Fleiri söngvarar koma við sögu. Eva er þekkt og umdeild fyrir hispurslausa framsetningu og fyrir skoðanir sínar, t.d. á femínisma. Hér sýnir hún á sér aðra hlið. Ljóðin hennar, sem eru hugleiðingar um lífið, eru fyrst og fremst snotur, þó að smá broddur leynist á stöku stað. Hér er dæmi: "Ef þig svíkur andans kraftur ekki hætta reyndu aftur hugurinn ber þig hálfa leið hitt er nám og vinna Þér yrði sjálfsagt gatan greið ef gætirðu kvartað minna" (Heilræðavísa). Þetta er mjög hrá og lifandi plata. Hún er greinilega unnin hratt og ekki verið að kippa sér upp við það þó að söngurinn sé ekki alltaf fullkominn. Gímaldin fer sínar eigin leiðir tónlistarlega. Hér eru þetta ýmis tilbrigði við hrátt rokk, sumt minnir á íslenska pönkið. Michael Pollock fyrrum Utangarðsmaður, spilar á gítar í tveimur lögum, en pönkið kemur ekki frá honum, hann spilar á slide-gítar í öðru og kassagítar í hinu. Þessi plata er eiginlega andstæða allra þessara vel og vandvirknislega unnu platna sem eru svo algengar í dag. Hér er bara tekið upp og látið flakka og útkoman er oft mjög skemmtileg. Söngvararnir koma misveg út. Gímaldin hefði alveg mátt syngja meira sjálfur, en þessi söngvarafjöld gefur plötunni samt annan karakter heldur en hún hefði fengið ef hann hefði sungið þetta allt sjálfur. Á heildina litið er þetta mjög skemmtileg plata. Kannski hefði mátt leggja aðeins meira í hana, ekki of mikið samt því það er þessi hrái karakter sem gerir hana svona skemmtilega. Niðurstaða: Ágætir textar Evu Hauks við heimabruggað og hrátt rokk Gímaldins.Gímaldin og Eva Hauksdóttir. Myndir/GVA og Vilhelm
Gagnrýni Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira