Magnolia-fyrirtækið kaupir Prince Avalanche Freyr Bjarnason skrifar 25. janúar 2013 07:00 David Gordon Green, Paul Rudd og Emile Hirsch á Sundance-hátíðinni. nordicphotos/getty
Prince Avalanche, endurgerð myndarinnar Á annan veg, virðist hafa hitt í mark á Sundance-hátíðinni því dreifingarfyrirtækið Magnolia Pictures hefur tryggt sér réttinn á myndinni í Norður-Ameríku. „Við erum öll miklir aðdáendur Davids Gordons Green og hefur lengi dreymt um að starfa með honum," sagði talsmaður Magnolia við Variety um leikstjóra myndarinnar. „Prince Avalanche er ótrúlega snjöll, fyndin, hlýleg og áhugaverð mynd með frábærum leik hjá Paul Rudd og Emile Hirsch." Green var einnig ánægður með samninginn: „Það var öðruvísi og skemmtilegt að búa til Prince Avalanche og viðbrögð áhorfenda hafa verið yndisleg. Ánægjan heldur áfram með samningnum við Magnolia um að dreifa myndinni. Ég gæti ekki verið stoltari." Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri Á annan veg, sá Prince Avalanche í fyrsta sinn á Sundance og var mjög ánægður. „Hún er mjög trú upprunalegu myndinni en stendur þó algjörlega sem sjálfstætt verk. Það var skrítið en skemmtilegt að sjá þessa útgáfu. Leikstjórinn og leikararnir eru fínir strákar sem báru mikla virðingu fyrir frumgerðinni."
Menning Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira