Jagúarnir ekki lengur aðhlátursefni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2013 08:25 Ace Sanders er hér í baráttu við varnarmenn Houston í nótt. Mynd/AP
Jacksonville Jaguars vann ekki leik í fyrstu níu umferðum NFL-deildarinnar en hefur hún unnið fjóra af síðustu fimm. Jaguars vann sinn þriðja leik í nótt er liðið mætti Houston Texans sem hefur hrunið í ár eftir gott tímabil í fyrra. Lokatölur voru 27-20. Flestir spekingar um NFL-deildina vestanhafs voru lengi vel sammála um að Jaguars voru langslakasta lið deildarinnar en eftir að liðið hvíldi í tíundu umferð hefur viðsnúningurinn verið ótrúlegur. Chad Henne kastaði fyrir tveimur snertimörkum í nótt og Jaguars stráði svo salt í sár Houston-manna þegar að útherjinn Ace Sanders, sem hefur yfirleitt það hlutverkt að grípa boltann, kastaði sjálfur fyrir snertimarki. Houston komst auðveldlega í úrslitakeppnina í fyrra og vann þar einn leik. Eftir sigra í fyrstu tveimur leikjum liðsins í ár hefur liðið nú tapað ellefu leikjum í röð og er með versta árangur allra liða í deildinni. Óhætt er að fullyrða að þjálfarinn Gary Kubiak sé valtur í sessi hjá Houston og framtíð hans hjá félaginu í mikilli óvissu. Hvorugt lið á möguleika á sæti í úrslitakeppninni en stuðningsmenn Jacksonville geta þó leyft sér að brosa í fyrsta sinn í langan tíma.
NFL Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjá meira