Sannleikurinn: "En á björtu nótunum þá hefst 30 ára afmælisdagskrá Rásar 2 á morgun“ Andri Þór Sturluson skrifar 27. nóvember 2013 14:35 Gunnar á völlum og Hraðfréttir fá sem betur fer að halda sér.
Öllum starfsmönnum RÚV sem ekki gátu framvísað flokksskirteini hjá ríkisstjórnarflokki eða eru ekki fastir gestir í jólaboði hjá Páli Magnússyni útvarpsstjóra hefur verið sagt upp vegna niðurskurðar sem kallaður hefur verið stærsti sigur ríkisstjórnarinnar gegn menningarlífinu á Íslandi. „Það er óhjákvæmilegt að niðurskurður af þessari stærðargráðu hefur mikil áhrif á dagskrá Ríkisútvarpsins. Á tímabili voru meira að segja nýju þættirnir, Sunnudagsmogginn með Gísla Marteini og spennuþrungni skemmtiþátturinn Vertu viss í hættu. En ég náði að bjarga þeim með því að vængbrjóta Kastljósið,“ sagði Páll Magnússon við fréttastofu. „En á björtu nótunum þá hefst 30 ára afmælisdagskrá Rásar 2 á morgun og við ætlum að blása til mikils fagnaðar.“Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en vegna niðurskurðar höfum við þurft að segja upp lesendum.
Harmageddon Mest lesið Undir stjórn Jaruzelskis Harmageddon Söngvari Muse hvetur Skota til að lýsa yfir sjálfstæði Harmageddon Ný plata hjá The Vaccines á þessu ári Harmageddon Ragnar Sólberg svitnaði og skalf Harmageddon Tónlistarblaðið Popp kynnir Poppskúrinn á Vísi Harmageddon Sannleikurinn: Nýjustu heimskupör Bakkavararbræðra kostar þá 700 þúsund Harmageddon 20 ár frá Unplugged tónleikum Nirvana Harmageddon Verra fyrir sálina að vinna silfur en brons Harmageddon Móðir Sævars poetrix viðurkennir ofbeldi Harmageddon Foo Fighters á leynitónleikum undir nafninu The Holy Shits Harmageddon