Elvar með 37 stig í sigri Njarðvíkur í tvíframlengdum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2013 21:20 Elvar Már Friðriksson. Mynd/Vilhelm
Njarðvíkingar eru komnir upp í þriðja sæti Dominos-deildar karla í körfubolta eftir fimm stiga sigur, 106-101, í frábærum tvíframlengdum leik í Icelandic Glacial höllin í Þorlákshöfn í kvöld. Elvar Már Friðriksson skoraði 37 stig fyrir Njarðvík og Nigel Moore var með 10 af 31 stigi sínum í framlengingunum tveimur. Elvar Már var einnig með 6 fráköst, 7 stoðsendingar og 12 fiskaðar villur Mike Cook Jr. var með 36 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar fyrir Þór, Nemanja Sovic bætti við 19 stigum og 16 fráköstum og Ragnar Ágúst Nathanaelsson skoraði 15 stig og tók 16 fráköst. Bæði lið voru búin að vinna 3 af fyrstu 4 leikjum sínum og áttu möguleika á því að komast upp í þriðja sæti deildarinnar með sigri. Þórsarar unnu þrjá fyrstu leiki sína en hafa nú tapað tveimur síðustu leikjum sínum á móti Reykjanesbæjarliðunum Keflavík og Njarðvík. Njarðvíkingar byrjuðu vel og voru níu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 24-15. Þórsarar svöruðu með því að vinna annan leikhlutann með sama mun, 24-15, og staðan var því 39-39 í hálfleik. Þórsarar náðu mest átta stiga forskoti í þriðja leikhlutanum en voru fimm stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 64-59. Þórsliðið var sjö stigum yfir, 74-67, þegar rúmar sex mínútur voru til leiksloka en Njarðvíkingar snéru við leiknum og leiddu með fjórum stigum, 82-78, þegar tæp mínúta var eftir. Tómas Heiðar Tómasson tryggði Þórsliðinu framlengingu með því að setja niður þriggja stiga körfu á lokasekúndunum. Liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrstu framlengingunni. Elvar Már Friðriksson tryggði Njarðvík aðra framlengingu þegar hann jafnaði í 96-96 en Mike Cook Jr. klikkaði á lokaskotinu. Nemanja Sovic kom Þór í 101-98 en Njarðvíkingar skoruðu átta síðustu stig leiksins og tryggðu sér sigurinn. Nigel Moore var með sex af þessum átta stigum.Þór Þ.-Njarðvík 101-106 (15-24, 24-15, 25-20, 21-26, 11-11, 5-10)Þór Þ.: Mike Cook Jr. 36/10 fráköst/6 stoðsendingar, Nemanja Sovic 19/16 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 15, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 15/16 fráköst, Þorsteinn Már Ragnarsson 8, Baldur Þór Ragnarsson 8/4 fráköst/8 stoðsendingar.Njarðvík: Elvar Már Friðriksson 37/6 fráköst/7 stoðsendingar/6 stolnir, Nigel Moore 31/11 fráköst, Logi Gunnarsson 15/5 fráköst, Hjörtur Hrafn Einarsson 8/6 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 4, Friðrik E. Stefánsson 4/13 fráköst/5 stolnir, Egill Jónasson 4, Ágúst Orrason 3.
Dominos-deild karla Mest lesið HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira