
„Við nefnilega byrjuðum af fullum krafti eftir kosningar. Leiðréttum lánin og björguðum heimilunum. En þessir fábjánar, þeir skuldsettu sig strax aftur. Komu síðan og heimtuðu að við redduðum þeim en þá var þjóðargjaldþrot orðið óumflýjanlegt. Vanþakkláta pakk,“
„Þar sem allt var hér í klessu eftir nokkur frekar stór byrjendamistök okkar í ríkisfjármálum þá varð ég að bregðast við með einhverjum hætti. Að stöðva fortíðar-mig áður en ég olli skaðanum fannst mér besti kosturinn.“
Sigmundur, þrátt fyrir úrtölur flokkssystkina sinna, bauðst til að ferðast aftur í tímann með tímavél til að leiðrétta leiðréttingu lánanna sem olli algjöru þjóðargjaldþroti í október 2013 og nánast sendi Ísland aftur í torfkofana. Hann ferðaðist alla leið aftur til maí 2013 og sannfærði þar sjálfan sig um að gera ekki neitt fyrir heimilin, enda myndu þessir fábjánar bara renna á rassgatið aftur. Sagði hann sjálfum sér að það besta í stöðunni væri að gera ekkert.
„Nú eftir að hafa breytt fortíðinni er ljóst að Framsóknarflokkurinn er ekki í góðum málum gagnvart kjósendum. Við höfum misst mikið fylgi samkvæmt skoðanakönnunum þar sem fólk heldur að við ætlum að svíkja kosningaloforðin. Hið rétta er að við stóðum við öll okkar loforð alveg í byrjun. Þau reyndust bara vægast sagt illa og í raun stórhættuleg, þannig að við leiðréttum þau. Þannig að í raun þá höfum við staðið við okkar.“

„Sko það er nefnilega svo að það er ekki einfalt. Þegar maður ferðast aftur í tímann þá geta minnstu breytingar valdið stórtjóni seinna meir. Það er víst kallað "butterfly effect" eða eitthvað. Ég reyndi t.d að ferðast aftur til ársins 2007 til að stöðva bankahrunið og þegar ég snéri aftur til baka var Ástþór Magnússon forseti yfir landinu og við komin í Evrópusambandið. Þá ákvað ég að laga það og leyfa bankahruninu að standa en þá var Jón Gnarr allt í einu borgarstjóri. Það er bara eitthvað sem ég þarf að lifa með. Það er komið nóg af tímaflakki í bili, nú tekur við hvíld.“
Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en hún var tekin í notkun árið 2024.