Vösk framvarðarsveit ungra Sjálfstæðismanna Frosti Logason skrifar 19. september 2013 18:00 Svalir Sjálfstæðismenn á fremsta bekk.
Harmageddon veitti því athygli að á fremsta bekk á nýliðnum fundi stjórnar Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, sat óvenju fríður hópur ungra og efnilegra stjórnmálamanna. Um er að ræða traustan hóp ungra Sjálfstæðismanna sem allir hafa látið nokkuð að sér kveða í umræðunni undanfarið. Þarna voru þeir Ágeir Geirsson, nemandi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands síðan árið 2007. Ólafur Hannesson sem sló eftirminnilega í gegn með frábærum sjónvarpsþætti nefndum eftir sjálfum sér á ÍNN eða Óli á Hrauni. Brynjólfur Sveinn Ívarsson sem bauð sig fram til stjórnlagaráðs árið 2010, en Ástþór Magnússon kallaði hann eftirminnilega Skæruliða hægri Öfgamanna í aðdraganda þeirra kosninga og Viðar H. Guðjohnsen en hann var á árum áður öflugur leiðtogi í ungliðahreyfingu Frjálslyndaflokksins og var þá duglegur við að láta að sér kveða í málefnum innflytjenda. Þessir piltar hafa verið að sækja alla mögulega fundi sem haldnir hafa verið á vegum Sjálfstæðisflokksins og aðildarfélaga hans að undanförnu. Aðspurður sagðist Viðar Guðjohnsen halda að þeir félagar hyggðust allir láta gott af sér leiða fyrir flokkinn í framtíðinni. Félagar í sjálfstæðisflokknum geta þannig glaðst yfir því að þvílík öndvegis sveit muni halda merkjum Fálkans hátt á lofti um ókomin ár. Hér fyrir neðan getur að líta vaska framgöngu Ólafs Hannessonar (Óla á Hrauni) á landsfundi Flokksins árið 2009.(Uppfært: Brynjólfur Sveinn Ívarsson gerði athugasemd við þessa frétt og benti á rangfærslur um félagastörf sín. Þetta hafi ekki verið fundur hjá stjórn Varðar í Valhöll, heldur hafi þetta verið fundur um aðalskipulag Reykjavíkur í Valhöll. Beðist er velvirðingar á því.)
Harmageddon Mest lesið Hringt til útlanda: Hvað finnst evrópskum almenningi um Pollana? Harmageddon Ein grófasta kvikmyndastikla sögunnar sett á vefinn Harmageddon Jón Gnarr svarar spurningum á Reddit í kvöld Harmageddon Tónleikar fullkomnir fyrir hösslið? Harmageddon Dóri DNA og stóru málin Harmageddon Viltu vinna nýju Hjálmaplötuna? Harmageddon "Það eru ekki allar stelpur svo heppnar að fæðast með píku" Harmageddon Sannleikurinn: Eiður Smári leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavík Harmageddon Sannleikurinn: Sjálfstæðisflokkurinn tapaði í prófkjöri sjálfstæðismanna Harmageddon Píratar bjóða fram í Reykjavík Harmageddon