Íslenski boltinn

Spear skaut ÍBV áfram í bikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
ÍBV er komið áfram í fjórðungsúrslit bikarkeppni karla eftir 1-0 sigur á BÍ/Bolungarvík fyrir vestan.

Eina mark leiksins kom á 38. mínútu en þar var Aaron Spear að verki með skalla eftir vandræðagang í vörn heimamanna.

Djúpmenn misstu svo mann þegar að Daniel Osafo-Badu fékk að líta beint rautt spjald á 79. mínútu leiksins.

Aðrir leikir í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar fara fram í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×