Handbolti

Fyrstu stig Þróttar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Páll Einarsson er þjálfari Þróttar.
Páll Einarsson er þjálfari Þróttar. Mynd/Valli

Þróttur fékk sín fyrstu stig í 1. deild karla í dag er liðið hafði betur gegn nýliðum Völsungs, 3-1, á Húsavík.

Þarna áttust við tvö neðstu lið deildarinnar og þau einu sem voru án sigurs. Húsvíkingar sitja því í botnsæti deildarinnar eftir leikinn með eitt stig.

Halldór Arnar Hilmisson kom Þrótturum yfir snemma leiks en Hafþór Mar Aðalgeirsson jafnaði metin. Sveinbjörn Jónasson skoraði svo áður en fyrri hálfleikur var flautaður af.

Andri Björn Sigurðsson innsiglaði svo sigur Þróttara með marki á 85. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×