Jovan öflugri en allur Snæfellsbekkurinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2013 17:00 Jovan Zdravevski. Mynd/Valli
Jovan Zdravevski er að koma sterkur inn af bekknum hjá Stjörnunni í þessari úrslitakeppni og það hefur ekki verið nein breyting á því í undanúrslitaeinvíginu á móti Snæfelli. Jovan Zdravevski er í hlutverki sjötta manns hjá Garðabæjarliðinu en hefur engu að síður skorað 15,6 stig að meðaltali í leik. Stjarnan tekur á móti Snæfelli í kvöld í fjórða leik liðanna í undanúrslitaeinvígi þeirra í Dominos-deild karla í körfubolta. Leikurinn fer fram í Ásgarði í Garðabæ, hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Stjarnan tryggir sér sæti í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn með sigri en vinni Snæfell leikinn á eftir verður oddaleikur í Stykkishólmi á mánudagskvöldið. Jovan Zdravevski skoraði 21 stig í 93-79 sigri Snæfells í þriðja leiknum í Stykkishólmi og nú er svo komið að hann hefur komið með meira að stigum inn af bekknum í einvíginu heldur en allur Snæfellsbekkurinn til saman. Jovan hefur skorað 42 stig í leikjunum þremur á móti Snæfelli en Hólmarar hafa á móti aðeins fengið samtals 35 stig frá sínum bekk. Mestur var munurinn í leik þrjú þar sem Jovan "vann" Snæfellsbekkinn 21-14.Stig frá bekknum í fyrstu þremur leikjum einvígis Snæfells og Stjörnunnar:Leikur eitt - Stjarnan 14-10 (+4) Jovan skoraði 14 stigLeikur tvö - Stjarnan 12-11 (+1) Jovan skoraði 7 stigLeikur þrjú - Stjarnan 24-14 (+10) Jovan skoraði 21 stig
Dominos-deild karla Mest lesið HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ Fótbolti „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira