Bjarki Már undir smásjánni hjá Medvedi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. mars 2013 18:45 Bjarki Már Elísson Mynd/Valli
Bjarki Már Elísson, leikmaður HK og landsliðsmaður í handbolta, er undir smásjánni hjá Rússneska stórliðinu Chekhovskiye Medvedi sem mætir einmitt Íslendingaliðinu Kiel í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Þetta kom fram hjá Herði Magnússyni í kvöldfréttum Stöðvar 2. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Stöðvar tvö þá vilja forráðamenn Medvedi fá Bjarka Má til reynslu með samning í huga fyrir næstu leiktíð. Bjarki Már gæti með þessu orðið fyrsti íslenski leikmaðurinn sem spilar í Rússlandi. Medvedi er stórlið í handboltanum og með liðinu leika margir rússneskir landsliðsmenn. Þjálfari liðsins er hinn goðsagnakenndi Vladimir Maksimov fyrrverandi landsliðsþjálfari og leikmaður rússneska og sovéska landsliðsins. Timur Dibirow spilar sem vinstri hornamaður hjá Medvedi í dag en hann sló í gegn á HM á Spáni og var meðal annars valinn í úrvalslið HM. Það er líklegt að Dibirow sé að fara til nýs liðs í sumar og að Medvedi sé að leita að eftirmanni hans. Bjarki Már Elísson varð Íslandsmeistari með HK á síðasta tímabili en lítið hefur gengið hjá liðinu í titilvörninni. Bjarki er samt langmarkahæsti leikmaður liðsins í N1 deildinni með 125 mörk í 18 leikjum eða meira 70 mörkum meira en næsti maður.
Olís-deild karla Mest lesið Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 101-105 | Langþráður sigur Íslandsmeistarana Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Handbolti ÍA - Valur 81-83 | Grátlegt tveggja stiga tap á nýjum heimavelli Körfubolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - KR 108-89 | Stórsigur gegn vængbrotnu liði Körfubolti Fleiri fréttir „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Andri kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Hauk Arnór Snær snýr aftur heim Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ ÍR áfram eftir sigur í Mosfellsbæ Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Tilkynnti um óléttu og nýjan samning á sama tíma Patrekur hættur eftir dapurt gengi Stjörnunnar Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Janus Daði myndaður í heimsókn hjá Barcelona Sjá meira