Handverksmaðurinn Spielberg Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 2. febrúar 2013 17:23 Daniel Day-Lewis er frábær í hlutverkinu, eins og honum er von og vísa.
Bíó. Lincoln Leikstjóri: Steven Spielberg Leikarar: Daniel Day-Lewis, Tommy Lee Jones, Sally Field, David Strathairn, Joseph Gordon-Levitt, James Spader, Hal Holbrook Það er langt síðan leikstjórinn Steven Spielberg gerði kvikmynd sem jafnast á við hans bestu frá því í gamla daga. Aðdáendur hans eru enn ekki búnir að fyrgefa honum hina hallærislegu War Horse sem kom út fyrir rúmu ári, og efasemdir létu á sér kræla um að hann ætti eitthvað inni sem kvikmyndagerðarmaður. En nú setur hann sig í stellingar og færir okkur 150 mínútna langa mynd um einn virtasta og dáðasta Bandaríkjaforsetann, Abraham Lincoln. Sagan hefst nokkrum mánuðum fyrir dauða forsetans og segir frá baráttu hans fyrir afnámi þrælahalds í landinu, en andstaðan var mikil og þótti mörgum forsetinn ganga helst til langt í tilraunum sínum til að binda enda á borgarastyrjöldina sem þá geysaði. Ef til vill er erfitt fyrir Íslending norður í ballarhafi að tengja við aðdáun Bandaríkjamanna á þessum löngu látna pólitíkus, en myndin er góð kennslustund og aldrei leiðinleg. Spielberg veit vel að herðar Daniel Day-Lewis eru nógu sterkar til að láta mynd af þessari stærðargráðu hvíla á, enda er hann algjörlega frábær í hlutverki sínu. Lítið fer fyrir Sally Field þrátt fyrir tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk forsetafrúarinnar, Mary Todd Lincoln. Tommy Lee Jones stelur hins vegar senunni sem skrautlegi Repúblikanaleiðtoginn Thaddeus Stevens, og á skemmtilegustu atriði myndarinnar. Myndatakan er glæsileg, sviðsmynd og búningar eins og best verður á kosið, og að sjálfsögðu er John gamli Williams til staðar með tónsprotann sinn. Allt er þetta gott og blessað, og það er himinn og haf á milli Lincoln og War Horse hvað gæði varðar. Þrátt fyrir þetta er eins og leikstjórann vanti einhvern listrænan neista. Hann er afar fær handverksmaður, það vantar ekki, en leikstjórans sem gerði Raiders of the Lost Ark, Schindler's List og Jaws er enn sárt saknað.Niðurstaða: Spielberg fyrirgefst hestamyndin, en hann getur gert betur en þetta.
Gagnrýni Mest lesið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Lífið „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Lífið Fleiri fréttir Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira