Butler byrjar vel með Valskonum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2013 16:34 Jaleesa Butler. Mynd/Anton
Valskonur byrja nýja árið vel í kvennakörfunni því þær sóttu tvö stig í Stykkishólm í dag í fyrsta leik fimmtándu umferðar Dominos-deildar kvenna. Snæfell var búið að vinna Val tvisvar örugglega í vetur en Valskonur unnu hinsvegar 81-64 sigur í leik liðanna í dag. Jaleesa Butler lék sinn fyrsta leik með Valsliðinu í dag og það er óhætt að segja að hún hafi byrjað afar vel í Valsbúningnum. Butler var með 18 stig og 19 fráköst í þessum leik. Guðbjörg Sverrisdóttir skoraði 10 af 16 stigum sínum í fyrsta leikhluta og Kristrún Sigurjónsdóttir var með 12 af 16 stigum sínum í seinni hálfeik. Hildur Björg Kjartansdóttir var stigahæst hjá Snæfelli með 22 stig og 12 fráköst og Alda Leif Jónsdóttir skoraði 14 stig. Valskonur voru búnar að tapa fjórum útileikjum í röð fyrir leikinn og urðu jafnframt aðeins annað liðið til að sækja stig í Hólminn á tímabilinu. Valsliðið var 24-14 yfir eftir fyrsta leikhlutann og með sjö stiga forskot í hálfleik, 39-32. Valsliðið náði 24 stiga forskoti í fjórða leikhlutanum en Snæfell lagaði aðeins stöðuna í lokin.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira