Einlægur eins og blúsara sæmir Björn Teitsson skrifar 5. desember 2012 14:00 Blúsinn í fangið með Skúla mennska.
Tónlist. Skúli mennski ásamt Þungri byrði. Blúsinn í fangið. Skúli mennski er vestfirskur laga- og textahöfundur sem hefur gert blústónlist að sínum starfsvettvangi. Blúsinn í fangið er önnur breiðskífa Skúla, en á plötunni nýtur hann liðsinnis hljómsveitarinnar Þungrar byrðar. Platan var tekin upp í mötuneyti á Flateyri og var tekin upp "live", sem er líklega eina leiðin til að gera þessari rótgrónu og einlægu tónlistarstefnu góð skil. Sem textagerðarmaður er Skúli einnig einlægur, eins og blúsara sæmir. Í fyrsta lagi plötunnar, Brottför, fjallar hann um flutning sinn frá Ísafirði á tregablandinn hátt, eins og sést með línunum "Ég var ekki fyrstur til að fara, mjög margir voru á undan mér / þeim fannst það kannski einfaldara að flýja en að búa hér." Í síðasta laginu fjallar hann um heimkomuna (Ég ætla heim) sem er honum mikill léttir, enda dvölin í Reykjavík erfið og einmanaleg. Þekkt minni úr blústónlistinni eru aldrei langt undan á plötunni. Óendurgoldin ást (Kvenmannsleysi, Þessir kossar), baráttan við Bakkus (Þetta er allt að koma, Dagur drykkjumaður) og almennar predikanir um lífsins gang eru til staðar. Rödd Skúla er hentug til verksins, en rödd hans myndi hæglega sæma bandarískum predikara – eins og vera ber. Skúli gerir upp bankahrunið (Halelúja, amen) með kímni eins og sést með orðunum "Veisluþjónusta viðskiptalífsins fer frá og við tekur skuldafen / Halelúja, amen." Textarnir eru annars innhverfir og fjalla um hans eigin ógæfu, sbr. "Ég stend fyrir ekkert, því ekkert er allt sem ég á". Flutningur Þungrar byrðar er hnökralaus, þó gítarhljómurinn sé ef til vill of tær. Blúsinn má vera "skítugri," ef svo má að orði komast. Rétt er þó að minnast á undrabarnið Þorleif Gauk Davíðsson munnhörpuleikara sem á sannkallaðan stórleik. Niðurstaða: Plata sem er vel yfir meðallagi frá mjög frambærilegum blúsara. Blúsaðdáendur ættu að gæða sér á skífunni hið snarasta.Skúli mennski. „Þekkt minni úr blústónlistinni eru aldrei langt undan á plötunni,“ segir í dómnum. Mynd/Julia Staples
Gagnrýni Mest lesið Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Lífið Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Lífið Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Lífið Umhugsunarefni fyrir foreldra vegna komu jólasveinanna Lífið Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Lífið Nágrannar kveðja endanlega í dag Bíó og sjónvarp Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Lífið Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Lawrence og Hutcherson snúa aftur í Hungurleikana Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira