Litli bróðir í Madríd minnir á sig Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. desember 2012 07:30 Það er pressa á Ronaldo og félögum.
Atlético Madrid heimsækir Real Madrid í slagnum um Madrídarborg í kvöld. Diego Simeone hefur náð frábærum árangri á innan við ári sem stjóri Atlético en þrettán ár eru síðan Atlético lagði Real að velli. Nú er lag en Atlético er aldrei þessu vant aðalkeppinautur Real. Atlético situr í öðru sæti deildarinnar en þremur stigum munar á liðinu og Barcelona sem vermir toppsætið. Real Madrid situr átta stigum á eftir grannliðinu og ellefu á eftir Börsungum. Möguleikinn á að liðið verji Spánarmeistaratitil sinn er lítill sem enginn. Atlético hefur ekki unnið deildina síðan tímabilið 1995-1996. Þá voru nítján ár frá síðasta meistaratitli félagsins. Sama tímabil vann liðið spænska konungsbikarinn sem síðan hefur dvalið í verðlaunaskápum annarra félaga. Tímabilið sigursæla stjórnaði argentínskur miðjumaður ferðinni hjá Atlético. Leikmaðurinn, Diego Simeone, er í dag knattspyrnustjóri félagsins og nýtur hann skiljanlega mikilla vinsælda hjá stuðningsmönnum félagsins. Síðan þá hefur Atlético ekki hafnað fyrir ofan Real í deildinni. Falcao gegn Ronaldo Allra athygli verður á markavélum liðanna, Cristiano Ronaldo hjá Real, sem þarfnast ekki frekari kynningar, og Radamel Falcao hjá Atlético. Óhætt er að fullyrða að Falcao sé stærsti bitinn á leikmannamarkaðnum í dag sem spilar ekki með einu „stóru félaganna" í Evrópu. Síðan Kólumbíumaðurinn gekk í raðir portúgalska félagsins Porto frá River Plate í Argentínu árið 2009 hafa netmöskvar um alla Evrópu fengið að finna fyrir spyrnum og sköllum framherjans. „Tígurinn" skoraði tæpt mark að meðaltali í leik með sigursælu liði Porto tímabilin tvö í Portúgal. Síðasti leikurinn var úrslitaleikur Evrópudeildarinnar vorið 2011 þar sem Falcao skoraði eina mark leiksins. Markið var hans átjánda í sextán leikjum keppninnar. Með réttu mætti krýna Kólumbíumanninn „konung Evrópudeildarinnar" því hann skoraði tvö marka Atlético Madrid í úrslitaleiknum í vor þegar félagið tók bikarinn í sína vörslu. 24 mörk á fyrsta tímabili í spænsku deildinni féllu í skuggann af Lionel Messi og Ronaldo sem einokuðu forsíður spænsku blaðanna. Þegar liðsmenn Chelsea gengu til búningsherbergja með skottið á milli lappanna í Ofurbikarnum í haust var aðeins eitt nafn á vörum sparkspekinga. Falcao hafði skorað þrennu í fyrri hálfleik gegn sjálfum Evrópumeisturunum og úrslitin ráðin. „Draumur sonar míns er að spila með Real Madrid," sagði faðir Falcao í viðtali við kólumbíska útvarpsstöð sem vakti mikla athygli. Ólíklegt má telja að af vistaskiptunum verði enda heiðursmannasamkomulag milli félaganna. Þó má fastlega reikna með því að Falcao söðli um fyrr en síðar. Í samningi Falcao kemur fram að Kólumbíumaðurinn megi yfirgefa félagið berist tilboð upp á 60 milljónir evra eða tæpa tíu milljarða króna. Það er helmingi hærri upphæð en Atlético keypti kappann á sumarið 2011. Chelsea er talinn líklegur áfangastaður Falcao en liðið gæti boðið fyrrum leikmann Atlético, Fernando Torres, í skiptum. Ólíklegt er að áhugi liðanna minnki eftir leikinn í kvöld enda líkurnar meiri en minni að Falcao verði á skotskónum.Aukaefni: Sé Diego Simeone ekki þegar kominn í guðatölu hjá stuðningsmönnum liðsins verður hann það takist liðinu að leggja stóra bróður á Santiago Bernabéu-leikvanginum í Madríd í kvöld. Atlético hefur ekki lagt Real að velli í þrettán ár. Þá unnu hinir rauðu og hvítu 3-1 sigur á Bernabéu. Síðan þá hefur Real unnið átján leiki en fimm sinnum hafa liðin skilið jöfn. Bið undirokaðra stuðningsmanna Atlético eftir sigri er því orðin löng og erfið. Til marks um hve langt er síðan skoraði Jimmy Floyd Hasselbaink tvö af mörkum gestanna en Hollendingurinn átti síðar eftir að mynda banvænt framlínupar með Eiði Smára Guðjohnsen hjá Chelsea. Iker Casillas, sem hafði ekki spilað með aðalliði Real á þessum tíma, sat á bekknum. Síðan hefur spænski markvörðurinn staðið vaktina 645 sinnum með Real og 143 sinnum fyrir land og þjóð.
Spænski boltinn Mest lesið Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Enski boltinn Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Enski boltinn Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Körfubolti Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Sport Fleiri fréttir Birtust á frægri nautabanaauglýsingu fyrir eina sigur sögunnar á Spáni Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Grímuklæddir áhorfendur ruddust inn á völlinn Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Rekinn eftir 8-0 sigur „Ísland er með óþægilegt lið“ Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Skoða leiðir fyrir knattspyrnustjóra til að skora á dóma í enska boltanum „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Gakpo leit upp til Alberts Aftur tapaði Real og rauða spjaldið tvisvar á loft Hanga fyrir ofan strik á markatölu Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ „Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking Sonur Åge Hareide ráðinn til Molde Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Væri kominn í þúsund mörk ef hann hefði nýtt öll vítin Chelsea jafnaði metið sem lið Heiðars Helgu setti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hvað er hann að gera hér?“ „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Hefur aldrei fengið hausverk á ævinni Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Allir sem hylji munninn verði reknir út af Dramatík hjá gömlu konunni í Rómarborg Losnar um pressu á Sverrislausan Benítez Sjá meira