Tónlist

Átján mánaða lagahöfundur

músíkalskir feðgar Þeir Guðmundur Ingi og Aðalsteinn Ingi eru báðir mikið fyrir tónlist og sömdu Ég held heim um jólin í sameiningu.fréttablaðið/valli
músíkalskir feðgar Þeir Guðmundur Ingi og Aðalsteinn Ingi eru báðir mikið fyrir tónlist og sömdu Ég held heim um jólin í sameiningu.fréttablaðið/valli
„Hann var raulandi sama stefið út í eitt í sumar, þá 18 mánaða, og það varð kveikjan að laginu. Mér fannst þetta svo jólalegt hjá honum. Ég reyndi nokkrum sinnum að raula með honum en þá hætti hann alltaf því ég gerði þetta víst ekki rétt," segir lagahöfundurinn og leikarinn Guðmundur Ingi Þorvaldsson.

Guðmundur Ingi samdi lagið Ég held heim um jólin með aðstoð sonar síns, Aðalsteins Inga, og hefur það nú verið gefið út af hljómsveitinni Loftskeytamenn, þar sem Guðmundur er einmitt söngvari. Hann segir Aðalstein Inga greinilega þekkja lagið þegar hann heyrir það.

„Hann virðist tengjast því að einhverju leyti því ég spilaði það til að mynda fyrir hann í gær og hann var sönglandi það allt kvöldið," segir hann.

Aðspurður hvort Aðalsteinn sé upprennandi tónlistarmaður segir Guðmundur svo vel geta orðið þar sem hann sé afar músíkalskur og læri texta, þrátt fyrir ungan aldur. „Við verðum að sjá til. Vonum bara að hann finni sína leið í lífinu," segir Guðmundur.- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.