Réttarhöldum yfir Breivik að ljúka 22. júní 2012 00:15 Anders Behring Breivik ásamt verjanda sínum Geir Lippestad í réttarsal í Ósló í gær. Fréttablaðið/AP
Svein Holden, saksóknari í dómsmáli norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik, krafðist þess í gær í lokaávarpi sínu að Breivik yrði dæmdur til vistunar á stofnun fyrir geðveika fremur en til fangelsisvistar. Fallist dómurinn í málinu á kröfur Holden þýðir það að Breivik er ekki metinn sakhæfur vegna árásanna í Ósló og Útey 22. júlí í fyrra. Yrði Breivik sem fyrr segir vistaður á stofnun fyrir geðveika þar sem hann gæti þurft að dveljast til æviloka. Í ávarpinu sagði Holden að óréttlætanlegt væri að dæma Breivik til fangelsisvistar þegar jafn mikill vafi væri á geðheilbrigði hans og raun bæri vitni. Tvær ólíkar skýrslur hafa verið unnar um geðheilbrigði Breiviks. Í annarri var hann talinn sakhæfur en í hinni ekki. Þá krafðist Holden þess til vara að Breivik yrði dæmdur til hámarksrefsingar í norskum lögum, 21 árs fangelsisvistar. Taka má fram að slíka refsingu má þó lengja að henni lokinni teljist viðkomandi fangi enn ógn við samfélagið. Verjandi Breiviks, Geir Lippestad, mun í dag flytja lokaávarp sitt í réttarhöldunum en hann mun sennilega mótmæla kröfu saksóknara um ósakhæfi. Breivik hefur sjálfur haldið því fram að krafan um ósakhæfi sé leið norskra stjórnvalda til að draga athyglina frá hugmyndafræði sinni og verkum.- mþl
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira