Skelfileg aðkoma eftir árásina 25. apríl 2012 02:30 Anders Behring Breivik
Norski öryggisvörðurinn Tor Inge Kristoffersen segir að ástandið í miðborg Óslóar hafi einna helst líkst stríðsvettvangi eftir að Anders Behring Breivik hafði sprengt 950 kílógramma sprengju fyrir utan stjórnsýslubygginguna, þar sem forsætisráðherrann hafði aðsetur. Kristofferson hafði fylgst með Breivik leggja bifreið sinni fyrir utan bygginguna og var að skoða bílnúmerið, til að kanna hvort bifreiðinni mætti leggja þarna, þegar sprengjan sprakk. Átta manns létu lífið og var aðkoman skelfileg: „Meira en hundrað líkamspartar fundust í stjórnsýsluhverfinu,“ sagði Ole Morten Störseth lögreglumaður, sem fékk það verkefni að bera kennsl á hina látnu. Þetta kom fram á sjöunda degi réttarhaldanna yfir Breivik í gær. Yfirheyrslum yfir honum er lokið í bili og þessa dagana lýsa vitni atburðarásinni í Ósló og á Úteyju, þar sem hann myrti 69 manns. Thor Langli, sem stjórnaði aðgerðum lögreglunnar, segir að sig hafi strax grunað að sami maður væri að verki þegar tilkynningar bárust um skotárás á Úteyju stuttu eftir árásina í Ósló. „Ég gat ekki ímyndað mér að tveir menn gætu verið með svona brjálaðar hugmyndir,“ sagði Langli við réttarhöldin í gær.- gb
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Innlent Fleiri fréttir Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Sjá meira