Tómt skothylki gæti skilað góðri veiði 10. desember 2012 12:45 Láttu ekki þitt eftir liggja er átak skotveiðimanna í samstarfi við Umhverfisstofnun og Olís. Mynd / Umhverfisstofnun
Skotveiðifélag Íslands minnir nú félagsmenn sína á að skila inn tómum skothylkjum svo þeir eigi möguleika á að vinna 150 þúsund króna eldsneytisúttekt. "Nú fer hver að verða síðastur að skila inn tómum skothylkjum til Olís því dregið verður um 150 þúsund króna eldsneytisúttekt þann 13. desember næstkomandi úr innsendum þátttökuspjöldum," segir á skotvis.is. vef Skotveiðifélagsins. Kveðst Skotvís þakka Olís og Umhverfisstofnun samstarfið í verkefninu sem ætlað sé "að minna veiðimenn á hve mikilvægt er að skilja ekkert eftir á veiðislóð nema sporin sín," eins og segir á vef Skotvís sem einnig þakkar veiðimönnum og skotfélögum sem taka þátt í verkefninu.gar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Víðidalsá - Uppgjör 2011 Veiði Laxá í Ásum fór á 28 milljónir Veiði Með 47 rjúpur um opnunarhelgina Veiði Fluguhnýtingarkeppni í tilefni 75 ára afmælis Veiðimannsins Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Kröfluflugurnar sterkar í sjóbirtinginn Veiði Tungufljót að taka við sér Veiði Stóru urriðarnir liggja líka í Kleifarvatni Veiði 86 sm maríulax kveikti á veiðibakteríunni Veiði Laxar að sýna sig í Laxá í Leirársveit Veiði