Veiði

26 milljóna króna tap hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur

Kristján Hjálmarsson skrifar
Mynd/Af vef SVFR
Um 26 milljóna króna tap varð á rekstri Stangveiðifélags Reykjavíkur samkvæmt ársreikningi sem kynntur var á aðalfundi félagsins í dag.

"Á síðustu fjórum árum hefur rekstrarniðurstaða félagsins verið neikvæð. Eiginfjárstaða hefur veikst á undanförnum árum og er svo komið að eigið fé félagsins er neikvætt um 9,7 milljónir króna. Grunnarekstur félagsins (EBITA) á yfirstandandi rekstrarári nam 10,0 millj.kr. en afskrifaðar kröfur vegna hrunáranna vega þungt í rekstrarniðurstöðu yfirstandandi starfsári. Stjórnin hefur útbúið rekstraráætlanir sem gera ráð fyrir viðsnúningi í rekstri félagsins á næstu árum," segir í skýringu með ársreikningnum.

Bjarni Júlíusson var endurkjörinn formaður SVFR en hann var einn í framboði og því sjálfkjörinn. Á vef SVFR er haft eftir Bjarna að ekki hafi verið fyrirséð hversu miklar afskriftir yrðu á árinu, sem séu mikil vonbrigði í ljósi þess að grunnreksturinn hafi skilað þessum 10 milljónum. Síðasta ár hafi verið ákaflega erfitt í sölu veiðileyfa í kjölfar hins mikla aflabrests í sumar og því hafi þessi góði árangur í grunnrekstrinum verið ákveðinn varnarsigur.

"Stjórnin hefur útbúið og kynnti á fundinum varfærna rekstraráætlun fyrir næsta ár sem gerir ráð fyrir 11,7 milljón króna hagnaði," segir á vef SVFR.

Ekki var kosning í stjórn á fundinum og því voru þeir stjórnarmenn sem voru í kjöri sjálfkjörin til næstu tveggja ára, þau Ragnheiður Thorsteinsson, Hörður Vilberg og Ásmundur Helgason.








×