Leob efstur í lok fyrsta dags í Frakklandi Birgir Þór Harðarson skrifar 5. október 2012 19:30 Leob er sigursælasti rallökuþór allra tíma.
Franski rallökuþórinn Sebastien Leob á Citroen-bíl er efstu að loknum fyrsta degi heimsmeistararallsins í Frakklandi sem fram fer um helgina. Fjórar sérleiðir voru eknar í dag en Leob getur tryggt sér níunda heimsmeistaratitilinn í röð með sigri í franska rallinu. Finnski Ford-ökuþórinn Jari-Matti Latvalla ætlar hins vegar að gera leikinn erfiðan fyrir Leob og er í lok fyrsta dags aðeins rúmum sjö sekúntum á eftir heimsmeistaranum og sækir á. Mikko Hirvonen, einnig frá Finnlandi og á Citroen-bíl, er sá eini sem getur stolið níunda heimsmeistaratitlinum af Leob en líkurnar á því að það gerist eru aðeins fræðilegar, svo gott er forskot Leob. Fjórar umferðir í heimsmeistararallinu eru eftir af þessu tímabili, ef franska rallið er talið með. 25 stig fást fyrir fyrsta sætið og er Leob með 61 stiga forystu á Hirvonen. Finninn Hirvonen þarf að vinna þrjár umferðir hið minnsta og vona að Leob fái ekki stig til að eiga einhverja von. Árangur Sebastien Leob er ótrúlegur. Átta heimsmeistaratitlar í röð gera hann að sigursælasta rallökuþór síðan keppni hófst undir merkjum WRC (World Rally Championship) árið 1977. Finnsku ökuþórarnir Tommi Mäkinen og Juha Kankkunen náðu fjórum titlum hvor. Sebastien Leob er merkilegur ökuþór. Fyrir utan að hafa unnið átta heimsmeistaratitla í rallý hefur hann ekið í sólahringsakstrinum í Le Mans og klárað annar, unnið RoC (Race of Champions) þrisvar og unnið Ríkjabikarinn fyrir Frakkland ásamt Formúlu 1-ökuþórnum Jean Alesi. Frakkinn mun að öllum líkindum hætta í rallý í lok ársins og ljúka farsælasta ferli nokkurs ökumanns í rallý í heiminum.Leob í Argentínu fyrr í ár.
Formúla Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Valsmenn settu sex gegn Grindavík Íslenski boltinn Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Gísli og félagar með fullt hús stiga Fótbolti Fleiri fréttir Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Sjá meira