Real Madrid burstaði Deportivo | Ronaldo með þrennu Stefán Árni Pálsson skrifar 30. september 2012 00:01 Nordic Photos / Getty Images
Real Madrid var í litlum vandræðum með Deportivo de La Coruña í spænsku úrvalsdeildinni þegar liðið gjörsigraði gestina 5-1. Það sló þögn á Bernabéu, heimavöll Real Madrid, þegar Riki kom gestunum yfir eftir korters leik en heimamenn létu markið ekkert slá sig útaf laginu og svöruðu um hæl. Cristiano Ronaldo jafnaði metin um tíu mínútum síðar og það var síðan Ángel di María sem kom Real Madrid yfir sjö mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Þegar aðeins ein mínúta var eftir að hálfleiknum skallaði Cristiano Ronaldo boltann í netið og var staðan 3-1 fyrir heimamenn í hálfleik. Real Madrid hélt áfram uppteknum hætti í síðari hálfleiknum og var það Pepe sem skoraði fjórða mark liðsins á 66. mínútu. Cristiano Ronaldo var aftur á ferðinni rétt fyrir leikslok þegar hann skoraði sitt þriðja mark í leiknum úr vítaspyrnu. Leiknum lauk því með öruggum sigri Real Madrid 5-1. Real Madrid er í 6. sæti deildarinnar með 10 stig en Deportivo de La Coruña í því 14. með sex stig.
Spænski boltinn Mest lesið Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Sameinast litla bróður hjá Kolstad Handbolti Fleiri fréttir Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Sjá meira