Drogba orðaður við Barcelona Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. júní 2012 23:34 Nordicphotos/Getty
Framherjinn Didier Drogba er orðaður við spænska félagið Barcelona í spænskum fjölmiðlum í kvöld. Drogba, sem nýverið samdi við Shangai Shenhua í Kína, má yfirgefa félagið bjóðist honum að ganga til liðs við Börsunga. Í samningi Drogba við kínverska félagið er klausa þess efnis að hann megi ganga til liðs við Barcelona bjóðist honum það. Drogba er sagður væntanlegur til Barcelona á morgun en óvíst er hvort áhugi Börsunga á Fílabeinsstrendingnum sé gagnkvæmur. Á vefmiðlinum Mundo Deportivo kemur fram að Drogba hafi áður sent þau skilaboð til Börsunga að hann væri til í að spila fyrir félagið en ekki fengið þau svör sem hann reiknaði með. Samkvæmt nýjustu tíðindum er ekki loku fyrir það skotið að Drogba gangi til liðs við lærisveina Tito Vilanova. Drogba yfirgaf enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea á frjálsri sölu að lokinni síðustu leiktíð. Óhætt er að segja að Drogba hafi hætt þegar hæst stóð leik en Chelsea varð Evrópumeistari eftir sigur á FC Bayern í úrslitaleik Meistaradildar Evrópu. Drogba skoraði í venjulegum leiktíma og úr síðustu spyrnu Chelsea í vítakeppni.
Spænski boltinn Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti „Úrslitin í leiknum algjörlega verðskulduð“ Sport Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Íslenski boltinn Albert ekki meira með íslenska landsliðinu Fótbolti Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Fótbolti Fleiri fréttir Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bayern bjargaði andlitinu gegn neðri deildar liði Íslensku landsliðskonurnar allt í öllu í sigri Inter Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Dramatískur sigur og lið Sveindísar á mikilli siglingu Albert ekki meira með íslenska landsliðinu „Þetta er þorpið manns“ Myndaveisla: Ísland gerði svekkjandi jafntefli við Eistland Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael „Við eigum að vinna þessa leiki“ Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig „Úrslitin eru vonbrigði og leikurinn vonbrigði“ „Það erfiðasta í fótbolta er að skora mörk“ „Láta kné fylgja kviði og keyra dálítið á þá“ Sjáðu mörk úr leik Íslands og Eistlands ásamt vítavörslu Hákons Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Byrjunarlið Íslands gegn Eistlandi: Stefán Teitur og Daníel í hjartanu - Orri fremstur Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Sjá meira