"Golfdagur í skammdeginu" verður haldinn á morgun á Korpúlfsstöðum en um hefðbundið sýningarform að ræða með vörukynningum, fyrirlestrum og veitingarsölu. Um miðjan mars eru flestir golfarar farnir að iða í skinninu eftir að komast í golf.
„Golfdagur í skammdeginu" er því kjörinn vettvangur þar sem golfarar geta komið, hlustað á fróðlega fyrilestra, skoðað græjur, og síðast en ekki síst hitt aðra golfara og rætt málin yfir kaffibolla og kökusneið.
Á sýningunni verða kynntar vörur sem snerta golfíþróttina og sýnendur munu kappkosta við að hafa úrvalið sem fjölbreyttast. „Hvernig verð ég betri í golfi ?" er heiti á röð örfyrirlestra sem fluttir verða milli kl. 14 - 15.
Á fyrirlestrunum verður mjög hnitmiðað fjallað um nokkra mikilvæga þætti sem geta stuðlað að fækkun högga á skorkortinu. Markmiðið er að áheyrendur fari heim með fróðleiksmola sem þeir geta hugleitt og unnið úr. Veitingarsala verður á staðnum.
Eitt af því sem „Golfdagur í skammdeginu" mun bjóða uppá er „Golfportið". Hér er um að ræða sölubás í Kolarportastíl þar sem notaður golfbúnaður verður seldur í umboðssölu.
Aðgangseyrir verður þúsund krónur en innifalið er aðgangur að sýningu og fyrirlestrum, ásamt einum happdrættismiða. Frítt verður fyrir 18 ára og yngri.
Fyrirlestrarnir á morgun:
"Ert þú í golfformi ?"
Hallgrímur Jónasson C.H.E.K. Golf performance series þjálfari. B.S. Íþróttafræðingur, Golfform
"Hvað þarf að hafa í huga þegar kylfingar fá sér driver ?"
Þorsteinn Hallgrímsson Custom fitter, Hole-in-One
"Hvernig á ég að æfa ?"
Brynjar Eldon Geirsson PGA golfkennari, ProGolf
"Boltaflugið mitt"
Árni Páll Hansson Golfkennari, ProGolf
"Hvernig geta golfreglurnar hjálpað mér að lækka skorið ?"
Hinrik Gunnar Hilmarsson Alþjóðlegur golfdómari
