John Daly fékk keppnisbann og sekt í Ástralíu | í fjórða sæti í Katar 6. febrúar 2012 18:30 Bandaríski kylfingurinn John Daly náði sér loksins á strik á golfvellinum en hann endaði í fjórða sæti á Katar meistaramótinu sem lauk um helgina. AP
Bandaríski kylfingurinn John Daly náði sér loksins á strik á golfvellinum en hann endaði í fjórða sæti á Katar meistaramótinu sem lauk um helgina. Daly er ekki með keppnisrétt á PGA eða Evrópumótaröðinni og hefur hann stólað á að vera boðið á mótin af styrktaraðilum. Það verður einhver bið á því að Daly leiki á ný í Ástralíu því þar hefur hann verið úrskurðaður í keppnisbann. Daly lét skapið hlaupa með sig í gönur á ástralska meistaramótinu í desember s.l. þar sem hann sló m.a. sjö bolta út í vatn á 11. braut, og í kjölfarið hætti hann keppni. Ekki hefur verið gefið út hve langt keppnisbannið verður eða hve háa sekt Daly fær. Daly fékk um 16 milljónir kr. fyrir fjórða sætið í Katar en hann verður á meðal keppenda á Dubai meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn. Það mót er hluti af Evrópumótaröðinni og margir af bestu kylfingum heims eru þar á meðal keppenda.
Golf Mest lesið Týnda treyjan var ekkert týnd heldur í einkasafni Madonnu Fótbolti Eru að borga Messi tíu milljarða á ári Fótbolti Bæði lögreglumenn og stuðningsmenn slösuðust í látunum eftir leik Fótbolti Tók dóttur sína með sér í sjónvarpsviðtalið og hún sló í gegn Sport Sjáðu markasýningu Viggós í dag Handbolti „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Körfubolti Villisvínin eyðilögðu fótboltavöllinn Fótbolti Stuðningsmaður tók VAR úr sambandi Fótbolti Sigurjón með 61 prósent markvörslu í norsku deildinni Handbolti Andrea byrjuð að slá met í Ástralíu: „Stærsti sigurinn“ að finna gleðina á ný Sport Fleiri fréttir Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Luke Donald getur skrifað Ryder-söguna en verður það á móti Tiger? Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira