Njarðvíkurkonur slógu út Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2012 21:50 Petrúnella Skúladóttir. Mynd/Stefán
Njarðvík varð í kvöld fjórða og síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Poweradebikars kvenna í körfubolta eftir 78-72 sigur á nágrönnunum úr Keflavík í framlengdum leik í Ljónagryfjunni. Petrúnella Skúladóttir tryggði Njarðvík framlengingu með því að setja niður eitt af tveimur vítum á lokasekúndum venjulegs leiktíma en Njarðvík vann síðan framlenginguna 11-5. Keflavíkurkonur voru tíu stigum yfir, 65-55, þegar aðeins tæpar sex mínútur voru eftir en leikur liðsins hrundi á lokamínútunum. Njarðvíkurliðið vann ellefu síðustu mínútur leiksins (síðustu 6 mínúturnar af fjórða leikhluta og framlenginguna) með sextán stiga mun, 23-7. Keflavíkurliðið var tveimur stigum yfir í hálfeik, 38-36. Pálína Gunnlaugsdóttir fékk sína fimmtu villu þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir og Keflavík var fimm stigum yfir, 67-62. Það vóg þungt á lokamínútunum að Keflavíkurliðið þurfti að spila án hennar. Keflavík er Íslands- og bikarmeistari og efst í deildinni. Liðið hafði komið í bikarúrslitaleikinn undanfarin þrjú ár.Njarðvík-Keflavík 78-72 (15-21, 21-17, 17-18, 14-11, 11-5)Stig Njarðvíkur: Shanae Baker-Brice 22/7 fráköst/5 stolnir, Lele Hardy 19/20 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 17, Ína María Einarsdóttir 12, Ólöf Helga Pálsdóttir 4, Salbjörg Sævarsdóttir 2, Harpa Hallgrímsdóttir 2/12 fráköst.Stig Keflavíkur: Jaleesa Butler 30/14 fráköst/6 stolnir, Pálína Gunnlaugsdóttir 15/5 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 10/5 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 8/6 fráköst, Helga Hallgrímsdóttir 6/8 fráköst, Shanika Chantel Butler 3/4 fráköst/6 stoðsendingar.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Handbolti Fleiri fréttir Banninu aflétt og Bretland mun mæta Íslandi Sá húsið sitt brenna til kaldra kola „Ha, átti ég metið?“ Rebekka Rut nýliði í fyrsta landsliðshóp Salminen Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Sjá meira