Fjölniskonur unnu Hauka óvænt á Ásvöllum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2011 19:19 Eva María Emilsdóttir tók 10 fráköst í kvöld.
Botnlið Fjölnis í Iceland Express deild kvenna gerði sér lítið fyrir og vann óvæntan sigur á Haukum, 59-56, á Ásvöllum í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Natasha Harris og Inga Buzoka voru báðar með tvennu í liði Fjölnis, Harrivar með 22 stig og 10 fráköst en Buzoka var með 15 stig og 11 fráköst. Bergþóra Holton Tómasdóttir, dóttir Tómasar Holton skoraði 11 stig. Kathleen Snodgrass og Ragna Margrét Brynjarsdóttir skoruðu báðar 18 stig fyrir Hauka. Haukakonur voru fyrir leikinn búnar að tryggja sér sæti í A-deild en liðið er búið að tapa fyrstu tveimur leikjum sínum síðan að þær bættu við sig breska leikmanninum Lauren Thomas-Johnsson. Thomas-Johnsson skoraði 6 stig á 29 mínútum í leiknum í kvöld en klikkaði á 7 af 9 vítaskotum sínum. Þetta var aðeins þriðji sigur Fjölnis á tímabilinu og sá fyrsti í fjórum leikjum en liðið situr áfram í neðsta sæti með jafnmörg stig og Grindavík. Haukaliðið var 15-12 yfir eftir fyrsta leikhluta en Fjölnir vann annan leikhlutann 17-10 og komst fjórum stigum yfir fyrir hálfleik. Haukakonur unnu upp muninn í seinni hálfleik og náðu að komast þremur stigum yfir þegar fjórar mínútur voru eftir. Fjölnir svaraði þá með átta stigum í röð, komst aftur fimm stigum yfir og tryggði sér síðan sigur eftir spennandi lokamínútur.Haukar-Fjölnir 56-59 (25-29)Stig Hauka: Kathleen Patricia Snodgrass 18/7 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 18/14 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 7, Lauren Jane Thomas-Johnsson 6, Íris Sverrisdóttir 5, María Lind Sigurðardóttir 2/4 fráköst.Stig Fjölnis: Natasha Harris 22/10 fráköst/5 stoðsendingar, Inga Buzoka 15/11 fráköst/4 varin skot, Bergþóra Holton Tómasdóttir 11, Birna Eiríksdóttir 7, Erna María Sveinsdóttir 3, Eva María Emilsdóttir 1/10 fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira