Messi pressar á Barcelona að gera nýjan samning við Guardiola Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2011 22:00 Lionel Messi. Mynd/AP
Lionel Messi vill endilega að Barcelona framlengi samning sinn við þjálfarann Pep Guardiola og hann hefur sett pressu á forráðamenn félagsins með því að segja að hann geti ekki ímyndað sér félagið án Guardiola. Messi hefur blómstrað undir stjórn Pep Guardiola sem sést vel á því að argentínski snillingurinn er búinn að skora meira en 120 mörk fyrir félagið síðan að Guardiola tók við af Hollendingnum Frank Rijkaard fyrir 2008-09 tímabilið. „Sannleikurinn er sá, að eftir allt sem hann er búinn að gera og skapa fyrir þetta Barcelona-lið, þá er ekki hægt að ímynda sér félagið án hans. Án Guardiola værum við ekki sama lið og við erum í dag," sagði Lionel Messi. „Ég vona að hann framlengi samninginn við fyrsta tækifæri og verði áfram," sagði Messi en samingur hins 39 ára gamla Pep Guardiola rennur út í vor. Guardiola sjálfur vill helst gera bara eins árs samning í einu til þess að halda sér á tánum. „Hann er með allt á hreinu hjá öllum leikmönnunum og ekki bara hjá mér. Hann er líka alltaf að hugsa um hver sé besta staðan fyrir mig. Hann vill hafa mig nálægt miðjumönnunum þannig að ég komist sem ofast í boltann," sagði Messi. Messi skoraði þrennu á móti Real Betis í gær og er þar með búinn að skora 31 mark á tímabilinu til þessa.
Spænski boltinn Mest lesið Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Enski boltinn Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Fótbolti Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Enski boltinn „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val Íslenski boltinn Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Fótbolti Fleiri fréttir Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Fiorentina fjarlægist fallsætin Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Elías með stórleik í sigri í toppslag Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Goðsögn tekur við og þjálfar son sinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Sjáðu tímamótamark íslenska táningsins eftir „erfiðan“ tíma Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM „Hann var grátandi í hálfleik“ Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Sjá meira