Salan á Veigari á borð lögreglu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. október 2011 08:30 Veigar lék lengi með Stabæk við góðan orðstír en sala hans hjá félaginu er afar umdeild.mynd/scanpix
Sagan endalausa um vistaskipti Veigars Páls Gunnarssonar frá Stabæk til Vålerenga í norska fótboltanum ætlar engan endi að taka. Félögin þurfa að greiða háa sekt og þrír háttsettir aðilar fá ekki að koma nálægt fótbolta í 12-18 mánuði – og nú hefur norska lögreglan áhuga á að rannsaka málið. „Við lítum á þetta sem brot á norskum lögum og ef málinu hefur verið rétt lýst í fjölmiðlum eigum við von á tilkynningu frá norska knattspyrnusambandinu,“ sagði fulltrúi lögreglunnar við norska fjölmiðla. Stabæk og Vålerenga eru grunuð um að hafa sett á svið leikþátt sem átti að koma í veg fyrir að Stabæk þyrfti að greiða allt að 50 milljónir kr. af söluverðinu til Nancy í Frakklandi. Veigar var seldur á 20 milljónir kr. og með í kaupunum fylgdi 15 ára unglingur sem metinn var á 80 milljónir kr. Nancy fékk því aðeins 10 milljónir kr. í sinn hlut. Stjarnan og KR, sem Veigar lék með hér á landi, voru einnig hlunnfarin í þessu máli, en þau eiga rétt á hlut af söluverði hans. Sjálfur segir Veigar, sem er saklaus aðili að málinu, að hann kæri sig ekki um þessa byrði. „Ég vil eiginlega ekki segja meira um þetta mál. Þetta hefur verið aukabyrði á mér sem ég þarf ekki á að halda. Ég mun ekki tjá mig meira um þetta.“
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Sjá meira