Lífið

Ferðast með 11 töskur

ferðast með fullar hendur
Rachel Zoe ferðast með 11 töskur fullar af fötum á tískuvikuna í París.
Nordicphotos/getty
ferðast með fullar hendur Rachel Zoe ferðast með 11 töskur fullar af fötum á tískuvikuna í París. Nordicphotos/getty
Stjörnustílistinn Rachel Zoe mætti með stæl á tískuvikuna í París en hún dró með sér hvorki meira né minna en ellefu stórar ferðatöskur fullar af fötum. Zoe setti mynd af öllum farangrinum á samskiptasíðuna Twitter og þar sást í sveittan eiginmann Zoe flytja herlegheitin á vagni.

Stílistinn er fastagestur á fremstu röð helstu tískuviðburða víðs vegar um heiminn og þarf því að skarta sínu fegursta fyrir ljósmyndara og önnur tískuljón. Eitt er víst og það er að hún á eftir að hafa úr nógu að velja næstu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.