Breyting til batnaðar 14. september 2011 11:00 Nýi Yarisinn er sportlegri en áður.
Fjöltækniskjár opnar ýmsa möguleika. Ný gerð Yaris er væntanleg til Íslands um mánaðamótin október/nóvember og eflaust margir sem bíða spenntir enda hefur Yaris verið með vinsælli smábílum á landinu. Væntanlegir kaupendur ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum. Hinn nýi Yaris hefur verið tekinn nokkuð í gegn að innan sem utan. Framhluti bílsins er nú mun sportlegri en áður. Spila þar inn í kúptar línur og skásett framljós. Þannig á Yaris að vera fyrsti bíllinn til að skarta þessu útliti sem einkenna mun Toyota-bifreiðar næstu árin. Hlutfallslegri stærð grilla hefur verið breytt með það að markmiði að ljá Yarisnum karlmannlegra útlit en áður. Enn fleiri breytingar er að finna innandyra. Mælaborðið hefur tekið miklum breytingum til batnaðar. Í fyrstu útgáfu Yaris voru mælarnir fyrir miðju bílsins sem bæði var óþægilegt og ljótt. Hönnuðir bílsins hafa í þetta sinn valið mun hefðbundnari leið. Mælarnir eru nú beint fyrir framan stýrið og fyrir miðju er stolt hönnuðanna, fjöltækniskjár. Toyota Touch & go er uppfullur af möguleikum. Fyrir utan hin venjubundnu stjórntæki er þar að finna bakkvél. Þar er hægt að tengja síma og tónhlöður. Í honum er vegaleiðsögutæki fyrir bæði Ísland og fleiri lönd og með bluetooth má tengja kerfið við Google-maps og færa inn leiðir og staðsetningar. Á skjánum er hægt að senda sms auk þess sem skjáinn má tengja við samskiptasíðuna Facebook. Fleira innanstokks vekur athygli. Natni hefur verið lögð í smáatriði. Þannig er stýrið sportlegt og appelsínugulir saumar á því og gírstönginni gefa ríkmannlega tilfinningu. Notað er mjúkt plastefni í mælaborð og meira króm en áður sem gefur fallega heildarmynd. Stór sóllúga er á flestum gerðum og fyrir vikið verður bíllinn mjög bjartur. Aksturseiginleikar bílsins eru fínir. Hann fer vel hvort sem er á hlykkjóttum sveitavegum eða þröngum borgarstrætum. Beygjuradíusinn er 4,7 m sem kemur sér ágætlega á þröngum götuhornum. Hann er mun rýmri en maður skyldi ætla af ytra útliti. Það var enda ein af þeim breytingum sem gerð var á bílnum, hann er nú með meira innra rými og betra pláss er fyrir farþega í aftursæti. Þó að bíllinn sé lengri en hann var áður er hann samt tuttugu kílóum léttari en fyrri gerðin. Þrjár vélagerðir verða í boði og hver gerð fáanleg í nokkrum útfærslum. Skemmtilegust var þó 1,4 l dísilvélin með MM-sjálfskiptingu. Krafturinn var nægur, hestöflin 90 en togið 205 Nm. Af öðrum útfærslum má nefna Yaris Terra með 1,0 l bensínvél, beinskiptur og Yaris Sol með 1,33 l bensínvél og fæst annaðhvort beinskiptur eða sjálfskiptur. Eyðslan er einnig góð fyrir budduna en Yaris eyðir frá 4,8 lítrum af bensíni en dísilvélin frá 3,9 l af olíu. solveig@frettabladid.isHugað er að smáatriðum í hönnun.Toyota Yaris reynsluakstur
Mest lesið Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Viðskipti innlent ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Viðskipti innlent Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent Hækka ekki verðtryggðu vextina Viðskipti innlent Kerecis fólk fjárfestir í flugi Viðskipti innlent Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira