Allt á einum stað 31. ágúst 2011 11:00 Valur Ásberg Valsson, framkvæmdastjóri Hressingar, býður heildarlausnir í snarli og drykk fyrir allar stærðir fyrirtækja. Mynd/GVA
Hressing, fyrirtækjaþjónusta Ölgerðarinnar, sérhæfir sig í heildarlausnum í drykkjarvöru og snarli fyrir vinnustaði landsins. Við bjóðum fyrst og fremst upp á gott úrval drykkjarvöru; eins og kaffi, te, vatnsdrykki, gosdrykki, safa og þykkni. Einnig bjóðum við upp á mikið úrval af snarli. Hugmyndin er að vinnustaðir landsins finni á einum stað þá hressingu sem hentar hverjum og einum," segir Valur Ásberg Valsson, framkvæmdastjóri Hressingar. Hressing varð til þegar Egill Skallagrímsson og heildsalan Danól sameinuðust í Ölgerðina árið 2007. „Við sameininguna skapaðist grundvöllur fyrir öfluga fyrirtækjaþjónustu með fjölbreyttu vöruúrvali," segir Valur en bætir við að gott vöruúrval dugi þó ekki til eitt og sér. „Við leggjum áherslu á að pöntunarferlið sé sem einfaldast og það er einlægt metnaðarmál okkar allra sem stöndum að Hressingu að halda þjónustustiginu háu." Valur útskýrir að fyrirtæki geti fengið heimsókn frá sölumanni eða hringingu frá þjónustuveri þegar ganga skal frá pöntun. „Eins nota mjög margir viðskiptavinir heimasíðuna www.hressing.is til að panta vörur. Það er bæði einfalt og fljótlegt." Hressing býður viðskiptavinum sínum upp á breiða línu af tækjum á borð við sjálfsala, kaffivélar, djús- og safavélar, vatnsvélar og kæliskápa. Það er svo í höndum þjónustudeildar Ölgerðarinnar að sjá um fyrir-byggjandi viðhald, uppsetningu tækja og áfyllingu. Allir sjálfsalar sem Hressing setur upp eru einfaldir í notkun; hægt er að nota greiðslukort en einnig er mögulegt að nota farsíma sem eru þá tengdir við ákveðin debet- eða kreditkort. Nýjasta viðbótin í þjónustu Hressingar er svo að tengja sjálfsalana við starfsmannakort. „Þá dregst úttektin af launum starfsmanns og kemur fram á launaseðli viðkomandi," útskýrir Valur. Í dag skipta um þúsund viðskiptavinir við Hressingu í hverjum mánuði og segir Valur þar eiga í hlut afar fjölbreyttan hóp vinnustaða af öllum stærðum. „Við erum með eigin dreifingu á höfuðborgarsvæðinu, á Snæfellsnesi austur til Hvolsvallar og allt þar á milli og frá Hrútafirði austur til Húsavíkur. Í tilviki þeirra vinnustaða sem ekki eru innan þessa svæðis þá notum við þriðja aðila til að koma vörunni tímanlega og örugglega á áfangastað. Það eiga allir að geta nýtt sér þjónustu Hressingar." Nánari upplýsingar er að finna á www.hressing.is.
Mest lesið Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Viðskipti innlent „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Viðskipti innlent Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Viðskipti innlent Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma Viðskipti innlent Verðbólga lækkar um 0,4 stig Viðskipti innlent Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Samstarf Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira