Skeinuhættar stjörnur sem springa út 21. júlí 2011 11:00 @Concept_myndatextar:Jóhann G. Hermannsson við bílrúður inni á lager.MYND/Pjetur
qw Fyrirtækið Orka að Stórhöfða 37 flytur inn og annast viðgerðir og skipti á bílrúðum. Orka er gamalt og rótgróið fyrirtæki stofnað 1946 og verður því 65 ára í ár. Upphaflega var það stofnað til að bora eftir heitu vatni en með tíð og tíma þróaðist þjónusta þess út í innflutning á bílrúðum og bílalakki og alla þjónustu sem þeirri vöru tengist. Starfsmenn Orku skipta um fleiri hundruð rúður á ári í höfuðstöðvunum að Stórhöfða 37 en á vegum fyrirtækisins eru líka menn sem fara á milli verkstæða og skipta fagmannlega um rúður. „Svo höfum við í nokkur ár verið í rúðuviðgerðum líka,“ segir Jóhann G. Hermannsson framkvæmdastjóri. „Það er vakning í þessu núna, við höfum síðastliðin fimm ár verið að gera við svona litlar stjörnur sem koma á framrúðurnar. En núna eftir kreppu kom meiri þrýstingur frá tryggingafélögum að gera meira við, sem er bara gott. En það er bara hægt að gera við litlar stjörnur en sprungur eltumst við ekki við,“ segir Jóhann sem telur að fyrirtækið eigi framrúður á lager í um 95 prósent af bílum á landinu í dag. Fyrirtækið er líka með þó nokkuð magn af afturrúðum á lager líka en hliðarrúður eru sérpantaðar. Erfitt er að vera með hliðarrúður á lager þar sem þær eru svo mismunandi í laginu. Þeir sem ætla að skipta um rúðu hjá Orku hringja og panta tíma, koma með bílinn að morgni og fá hann aftur samdægurs. Orka hjálpar til við útfyllingu á nauðsynlegum plöggum og innheimtir 15 prósent sjálfsáhættugjald fyrir tryggingafélagið. Viðskiptavinurinn þarf aldrei að hafa samband við það sjálfur. „Við getum oft séð hvar er verið að vinna í vegum á landinu hér á verkstæðinu,“ segir Jóhann og hlær. „Það er mest um brotnar rúður þar sem verið er að leggja nýklæðningar og smásteinar skjótast upp. En svo kemur önnur törn þegar frystir. Þá hafa menn fengið lítið steinkast um sumarið og síðan myndast litlar stjörnur sem springa út um veturinn. Þetta tvennt er svona algengast,“ segir Jóhann. Hjá Orku starfa níu menn og eru þeir með áratuga reynslu að baki og með menntun í faginu. Sjálfur er Jóhann lærður bifreiðasmiður sem hefur ófáa bílrúðuna hanterað. Hann bendir fólki á heimasíðu fyrirtækisins á slóðinni bilrudur.is.
Sérblöð Mest lesið Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Viðskipti innlent Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Viðskipti innlent „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Neytendur Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira