Þór Þorlákshöfn upp í úrvalsdeild karla í körfubolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2011 21:39 Benedikt Guðmundsson er að gera frábæra hluti í Þorlákshöfn.
Þór úr Þorlákshöfn tryggði sér í kvöld sæti í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir 20 stiga sigur á Valsmönnum, 99-79, í Þorlákshöfn. Þórsliðið er búið að vinna alla fjórtán leiki sína á tímabilinu og ekkert lið getur lengur náð þeim að stigum. Benedikt Guðmundsson, fyrir þjálfari Íslandsmeistara KR, tók við Þórsliðinu fyrir tímabilið og hefur stýrt þeim upp í úrvalsdeild alveg eins og hann gerði með Fjölnisliðið tímabilið 2003-2004. Eric James Palm skoraði 33 stig fyrir Þór í kvöld, Grétar Ingi Erlendsson var með 18 stig og Vladimir Bulut skoraði 17 stig og tók 13 fráköst. Þór Þórlákshöfn hefur nú 28 stig og átta stiga forskot á Þór Akureyri en Akureyringar eiga bara þrjá leiki eftir og geta því aðeins náð 26 stogum. Þór hefur síðan tíu stiga forskot á Skallagrím og Breiðablik sem eiga bæði fjóra leiki eftir og geta því aðeins náð 26 stigum. Efsta liðið fer beint upp en næstu fjögur lið taka síðan þátt í úrslitakeppni um hitt sætið. Það er ekki enn ljóst hvaða lið komast í hana því það munar aðeins fjórum stigum á Þór Akureyri í 2. sætinu og Val og FSU sem eru í 5. til 6. sæti. Þór úr Þorlákshöfn var síðast í úrvalsdeild karla veturinn 2006 til 2007 en liðið féll þá aftur úr deildinni eftir aðeins eitt ár meðal þeirra bestu. Þór var líka í efstu deild 2003-2004 og er því að fara spila sitt þriðja tímabil úrvalsdeild karla á næsta tímabili.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Fótbolti Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Íslenski boltinn Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Hefur Ben Simmons náð botninum? Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar „Fannst þeir sýna meiri hörku, sem ég átti erfitt með“ „Auðvitað söknum við okkar besta og reynslumesta manns“ Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir „Eins og þeim finnist ekkert gaman að spila körfubolta“ Mæta sitthvoru ítalska liðinu í leikjunum tveimur „Löngu kominn tími til að fara á EuroBasket“ Ævintýraleg upphafsár Kananna í körfu á Íslandi „Hvernig eigum við að ná á EM ef að landsliðsmenn okkar eru ekki í liðinu?“ Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Gafst upp á að læra frönskuna Tekst á við lífið á nýjum stað: „Svolítið óstabílt umhverfi“ LeBron James hættur á samfélagsmiðlum Fékk tæknivillu fyrir að horfa á mótherja Sjá meira