Lífið

Eiga nóg af lögum á lager

Búast má við að ný plata frá Green Day líti dagsins ljós í ár eða á næsta ári.
Búast má við að ný plata frá Green Day líti dagsins ljós í ár eða á næsta ári.
Hinn ávallt unglegi Billy Joe Armstrong, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinar Green Day, lýsti yfir á Twitter-síðu sinni á dögunum að hann og hljómsveitarfélagar hans væru duglegir við að semja lög þessa dagana.

 

„Green Day er búin að semja ný lög á hverjum degi,“ sagði hann. „Við eigum tonn af nýjum lögum. Við erum að fara í ferska og kröftuga átt.“

 

Green Day sendi síðast frá sér plötuna 21st Century Breakdown árið 2009, en platan var sú áttunda í röðinni frá þessari vinsælu hljómsveit. Hljómsveitin hafði hingað til ekki gefið neitt upp um nýja plötu, en nú vonast aðdáendur hljómsveitarinnar til þess að plata sé væntanleg frá Green Day á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.