Lífið

Kærustparatónlist sem varð til á fylleríi

Valdimar Guðmundsson og Björgvin Ívar Baldursson eru að undirbúa sína fyrstu plötu saman. Fréttablaðið/Vilhelm
Valdimar Guðmundsson og Björgvin Ívar Baldursson eru að undirbúa sína fyrstu plötu saman. Fréttablaðið/Vilhelm
Valdimar Guðmundsson, söngvari hljómsveitarinnar Valdimar, og Björgvin Ívar Baldursson, upptökustjóri hjá Geimsteini og liðsmaður Lifunar, gefa saman út plötu í sumar.

„Þetta er svona kærustuparatónlist. Ég tók upp Valdimars-plötuna og síðan á einhverju fylleríi ákváðum við að semja saman lög. Daginn eftir var það enn þá góð hugmynd," segir Björgvin Ívar. „Við hittumst þrisvar og náðum að koma með hugmyndir að yfir tuttugu lögum. Það gekk svo fáránlega vel að við ákváðum að gera plötu."

Valdimar er einnig mjög spenntur fyrir plötunni. „Það er alltaf gaman að gera eitthvað nýtt. Þetta dæmi verður svolítið rólegra en ég hef gert. Ég hef alltaf verið hrifinn af þessum kósý tónum," segir hann og líkir samstarfi þeirra Björgvins við hljómsveitina Bon Iver.

Fyrsta plata hljómsveitarinnar Valdimars, Undraland, kom út fyrir síðustu jól og hefur selst í hátt í tvö þúsund eintökum. Hún er um þessar mundir í efsta sætinu á sölusíðunum Tonlist.is og Gogoyoko.com, auk þess sem lagið Yfirgefinn er vinsælast á Tonlist.is. „Ég bjóst ekki alveg við svona miklum vinsældum," segir Valdimar, ánægður með lífið og tilveruna.

Fram undan hjá hljómsveitinni er spilamennska á alþjóðlegri tónlistarhátíð stúdenta í bænum Greifswald í Þýskalandi um miðjan maí. Það verða fyrstu alvöru tónleikar sveitarinnar erlendis. „Ég hlakka mikið til. Þetta verður svakalega gaman," segir hann og útilokar ekki nýja Valdimars-plötu á næsta ári. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.