Tíska og hönnun

Myndskreyttir Buffalo-skór

Svartur kjóll með skemmtilegum smáatriðum frá Moon Spoon Saloon. Mynd/Copenhagenfashionweek
Svartur kjóll með skemmtilegum smáatriðum frá Moon Spoon Saloon. Mynd/Copenhagenfashionweek
Hönnun danska tískumerkisins Moon Spoon Saloon þykir ólík annarri skandinavískri hönnun. Flíkurnar eru ýktar, litríkar og framandi.

Sara Sachs er aðalhönnuður fatamerkisins en listamaðurinn Tal R sér um að glæða flíkurnar lífi með lit. Aðrir meðlimir Moon Spoon Saloon gengisins eru ljósmyndarinn Noam Giegst og stílistinn Melanie Buchhave.

Hópurinn er óhræddur við að fara eigin leiðir í hönnun sinni og þykir mörgum aðdáunarvert hvað þau láta sig það litlu varða hvort flíkurnar eru söluvænar eða ekki.

Skemmtilegt mynstur. Listamaðurinn Tal R sér um að glæða flíkurnar lífi og lit.
Hönnun Moon Spoon Saloon er fyrst og fremst listræn, ýkt og glaðleg en fáir hönnuðir leyfa sér slíkt í dag. Ný lína merkisins var sýnd á tískuvikunni í Kaupmannahöfn í febrúar og þar klæddust fyrirsæturnar gömlum Buffalo-skóm sem liðsmenn Moon Spoon Saloon höfðu skreytt og málað í ýmsum skemmtilegum litum.

Þó að hönnun hópsins sé ef til vill of ærslafull fyrir suma er gaman að fylgjast með hönnun hans sem er ólík öllu öðru.

Svartar leggings og litríkur mittisjakki við. Skórnir voru skreyttir af liðsmönnum Moon Spoon Saloon fyrir sýninguna.
Framúrstefna Hönnun Moon Spoon Saloon þykir stundum ljósárum á undan öðrum enda eru flíkurnar nokkuð framúrstefnulegar. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.