Vísar jafnréttiskvörtun til flokkanna 17. mars 2011 05:00 Forseti alþingis Ásta Ragnheiður hefur vísað kvörtun Jafnréttisráðs til flokkanna.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, vísar kvörtun Jafnréttisráðs um kynjahlutfall í landskjörstjórn til flokkanna. Jafnréttisráð lýsti nýlega yfir undrun á því að jafnréttisjónarmið hefðu ekki verið höfð að sjónarmiði þegar fjórir karlar og og ein kona voru kosin í landskjörstjórn. Ráðið undrast á því að Alþingi gangi með þessu gegn anda jafnréttislaga og vill að kosningin verði endurtekin. Þá er skorað á þingforseta að sjá til þess að slíkt endurtaki sig ekki. Ásta Ragnheiður segir, í svari við fyrirspurn Fréttablaðins, að landskjörstjórn sé kosin á Alþingi, en ekki skipuð. Á því sé grundvallarmunur. Stjórnmálaflokkarnir bjóði fram fulltrúa sína á framboðslistum og Alþingi kjósi stjórnina. Ásta bætir því við að þó sé gott að Jafnréttisráð sé á vaktinni. „En það hlýtur að sjálfsögðu að vita að um kosningar gilda ekki ákvæði laga um skipan í nefndir, stjórnir og ráð hins opinbera.“ Ásta segir að lokum að ekki standi á forseta Alþingis að hvetja til jafnréttis á öllum vígstöðvum. „En hann getur ekki stjórnað því hverja flokkarnir bjóða fram á framboðslistum sínum í kosningum, þó að hann geti hvatt til að kynjaskipting á framboðslistum sé sem jöfnust.“- þj
Fréttir Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira