Lífið

Liam ræðst á Radiohead

Liam Gallagher er ekki hrifinn af nýjustu plötu Radiohead.
Liam Gallagher er ekki hrifinn af nýjustu plötu Radiohead.
Skiptar skoðanir eru um nýjustu plötu hljómsveitarinnar Radiohead, The King of Limbs, sem kom út á dögunum. Platan hefur þó fengið fína dóma gagnrýnenda og er með 81 af 100 mögulegum í meðaleinkunn á vefsíðunni Metacritic.com.

Liam Gallagher, fyrrverandi meðlimur Oasis og núverandi forsprakki hljómsveitarinnar Beady Eye lætur Radiohead heyra það í viðtali í vefritinu The Quietus. Hann segist hafa hlusta á nýjustu plötu Radiohead og sagt við sjálfan sig: „Ha?!". „Þeir sömdu lag um andskotans tré," heldur hann áfram. „Látið ekki svona! Þúsund ára gamalt tré? Farið til fjandans! Maður hefði haldið að þeir myndu semja lag um nútímatré eða tré sem var gróðursett í síðustu viku, skilurðu hvað ég meina?"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.