Hátíðin hefur sannað sig og fest rætur 9. mars 2011 00:01 Sigurður Hall matreiðslumeistari og Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri Food and Fun.
Matarhátíðin Food and Fun verður haldin í tíunda skipti í Reykjavík dagana níunda til þrettánda mars og verður með veglegasta móti í tilefni afmælisins. Fjöldi nafntogaðra erlendra matreiðslumanna mun sækja landið heim og glæða borgina lífi. Matreiðslumeistarinn Sigurður Hall hefur staðið að baki hátíðinni frá upphafi ásamt félaga sínum Baldvini Jónssyni. "Baldvin hafði gengið með þessa hugmynd í maganum um nokkurt skeið og nefnt hana við mig. Það var samt ekki fyrr en í kringum aldamótin síðustu að forsvarsmenn Icelandair lýstu sig reiðubúna til að vera með en aðkoma flugfélags var í raun forsenda þess að gera þetta mögulegt. Þetta var skömmu eftir árásina á tvíburaturnana árið 2001. Ferðamennska lá niðri og ljóst að það þurfti átak til að koma henni af stað á ný. Hátíðin var liður í því en helsti tilgangur hennar er að laða erlenda aðila til landsins og fá umfjöllun um íslenskar landbúnaðarafurðir, hreinleikann, öryggið og landsins gæði. Það hefur tekist og er varla fjallað um landið í dag án þess að minnast á matinn sem einkennir okkur," segir Sigurður. Fyrirkomulag hátíðarinnar hefur frá upphafi verið þannig að erlendir kokkar sækja landið heim og matreiða úr íslensku hráefni í einhvers konar blöndu af keppni og skemmtun. "Þeim er parað saman við íslenska veitingastaði sem hafa svipaðar áherslur og þeir sjálfir og er þeim falið að útbúa fjögurra rétta máltíð. Almenningur getur svo valið á milli sautján veitingastaða að þessu sinni en alls staðar kostar matseðillinn það sama, eða 6.900 krónur." Sigurður gerir ráð fyrir því að allt að 20.000 gestir muni sækja veitingastaði borgarinnar á meðan á hátíðinni stendur.Fyrirkomulag keppninnar verður með breyttu sniði í ár en kokkarnir munu keppa í þremur riðlum. Sigurvegararnir í hverjum riðli fyrir sig keppa síðan sín á milli laugardaginn 12. mars. Þaulreyndir dómarar mæta til leiks en þeirra á meðal eru menn á borð við Jeffrey Buben, Robert Wiedmayer og Jeff Tunks frá Washington en þeir hafa unnið með Sigurði og Baldvini að hátíðinni frá upphafi. Um er að ræða þungavigtarmenn á sínu sviði en Jeff Tunks er meðal annars einn af þekktustu matreiðslumönnum Bandaríkjanna. Í verkahring dómaranna er einnig að sjá um fjögurra rétta hátíðarmatseðil í Súlnasal Hótel Sögu á laugardagskvöldið en þar verður hátíðardagskrá í tilefni afmælisins.Sigurður segir Food and Fun hátíðina fyrir löngu hafa sannað gildi sitt. "Hún er orðinn jafn fastur liður og páskarnir, verslunarmannahelgin og 17. júní og er sannarlega komin til að vera."
Veitingastaðir Mest lesið Afhjúpaði óléttuna á epískan hátt enn og aftur Tíska og hönnun Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Lífið Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Gagnrýni Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Lífið Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Lífið Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Lífið Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Tónlist Blautir búkar og pylsupartí Menning Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp