Gunnar Rúnar fluttur á Sogn Erla Hlynsdóttir skrifar 6. janúar 2011 12:07 Gunnar Rúnar er enn í gæsluvarðhaldi en hefur verið fluttur af Litla-Hrauni og á Sogn Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem játað hefur að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana, var á mánudag fluttur af Litla-Hrauni og á réttargæsludeildina á Sogni. Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Gunnars Rúnars, staðfestir þetta í samtali við Vísi. Gunnar Rúnar er enn í gæsluvarðhaldi en aðalmeðferð í máli hans hefst 7. febrúar. Tvær geðrannsóknir hafa verið gerðar á Gunnari Rúnari. Niðurstaða þeirra beggja, undirmats og yfirmats, er sú að Gunnar sé ósakhæfur. Endanlegur úrskurður um þetta er þó í höndum dómara. Spurð um ástæður þess að Gunnar Rúnar er færður á Sogn áður en endanleg niðurstaða um sakhæfi hans liggur fyrir bendir Guðrún Sesselja á að hún hafi óskað eftir því að hann yrði vistaður á réttargeðdeild frekar en í fangelsi. Þá telur hún það hafa skipt máli að bæði undirmat og yfirmat geðlækna var að Gunnar Rúnar væri ekki sakhæfur. Eins og fréttastofa hefur greint frá var fjölskylda hins myrta mótfallin því að Gunnar Rúnar yrði vistaður á Sogni frekar en á Litla-Hrauni. Guðrún Sesselja vill ekki tjá sig um líðan Gunnars Rúnars eða hvernig honum líst á að vera kominn á Sogn.
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Sjá meira