Fylling
40gr smjör
200gr sveppir
1 stk laukur
1 stylkur selleri
1 hnefi fersk steinselja
200gr beikon
50gr heslihnetur (saxaðar)
100gr brauðteningar (gamalt brauð)
1 stk epli
300gr rjómaostur
1 msk kalkúnakrydd (pottagaldrar)
Salt og pipar
Fyllingin
Sveppir, laukur og selleri er skorið niður og steikt uppúr smjöri. Beikonið er skorið niður og sett saman við og steikt. Þá er restinni blandað saman við og hrært í góðan graut. Setjið allt í matarvinnsluvél og vinnið létt saman (ekki of mikið, eiga að vera smá bitar)
Aðferð
Skorið er stórt gat á bringuna og fyllingin sett í gatið. Bringan er svo pensluð með smjöri, krydduð með kalkúna kryddi, salt og pipar.
Bringan er sett inní 170° heitan ofn og elduð í c.a 50 mín. ( 1 kg bringa + fylling) gott er að setja grillið á í restina til að fá góða grillaða húð.
Athugið að ef bringan er stærri þarf lengri eldunartíma ( 1.5 kg bringa þarf c.a 70 mín)
Sósa
250gr sveppir
2 dl vatn
2 msk kalkúnakraftur
1 pakki piparostur rifinn
½ l rjómi
Salt og pipar
Eplasalat
1 stk Epli
10 stk Vínber
5 c.m Selleri
2 dl Rjómi þeyttur
Skerið eplið niður í litla bita, skerið seleri í mjög smáa bita, blandið svo öllu saman.
Sætar kartöflur skornar í lengjur og steiktar uppúr isio olíu, bakaðar við 170° í c.a 30 mínútur.
joifel.is
