Barcelona-liðið komið í bikarúrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2011 20:40 Leikmenn Barcelona fagna marki Adriano Correia. Mynd/AP
Barcelona tryggði sér sæti í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins með 3-0 útisigri í seinni undanúrslitaleiknum á móti Almería í kvöld. Barcelona vann fyrri leikinn 5-0 og því 8-0 samanlagt. Seinna í kvöld spila Real Madrid og Sevilla seinni leik sinn en Real vann 1-0 sigur í fyrri leiknum. Þetta er í 35. sinn sem Barcelona kemst alla leið í úrslitaleikinn en jafnframt aðeins í annað skiptið frá árinu 1998. Barcelona vann Athletic Bilbao í úrslitaleiknum árið 2009 en var þá að spila sinn fyrsta úrslitaleik frá 1998. Vinstri bakvörðurinn Adriano Correia kom Barcelona í 1-0 á 34. mínútu eftir einstaklingsframtak, Thiago Alcántara skoraði annað markið á 58. mínútu eftir sendingu Dani Alves og þriðja markið skoraði síðan Hollendingurinn Ibrahim Afellay á 66. mínútu eftir sendingu frá Seydou Keita. Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, leyfði sér að hvíla marga lykilmenn í leiknum en Seydou Keita, Javier Mascherano og Thiago byrjuðu á miðjunni og í framlínunni voru þeir Ibrahim Afellay, Bojan Krkic og Nolito. Lionel Messi, Xavi, David Villa og Pedro Rodríguez voru allir á varamannabekknum og enginn þeirra kom við sögu í leiknum.
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Sjá meira