Obama krefst aðgerða hjá ESB gegn skuldakreppunni 29. nóvember 2011 06:56
Leiðtogar Evrópusambandsins verða að grípa til raunhæfra aðgerða strax áður en skuldakreppan í Evrópu fer algerlega úr böndunum og skaðar efnahag Bandaríkjanna. Þetta voru skilaboðin frá Barack Obama Bandaríkjaforseta þegar hann hitti nokkra leiðtoga Evrópusambandsins á fundi í Hvíta húsinu í Washington í gærkvöldi. Meðal þeirra sem sátu fundinn af hálfu Evrópusambandsins voru Herman Van Rompuy forseti sambandsins og José Manuel Barroso formaður framkvæmdanefndar þess. Auk Obama voru Hillary Clinton utanríkisráðherra og Timothy Geithner fjármálaráðherra Bandaríkjanna á fundinum. Obama segir að Bandaríkin muni leggja sitt af mörkum til að leysa skuldakreppuna en hann gat ekki um neinar ákveðnar aðgerðir í því sambandi. Hann segir hinsvegar að lausn á kreppunni sé ákafleg mikilvæg fyrir Bandaríkin. Í fjölmiðlum vestan hafs er haft eftir sendiherra Evrópusambandsins í Bandaríkjunum að þegar sé farið að ræða í einkaviðtölum um til hvaða aðgerða Bandaríkin muni grípa gegn skuldakreppunni.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira