Opinberar tölvupósta milli sín og Pálma - ekki hræddur við hann 30. september 2011 09:17 Birgir Jónsson hætti sem forstjóri Iceland Express eftir 10 daga í starfi. Mynd/Pjetur „
Ég er ekki fæddur í gær og hef langa reynslu af samskiptum við Pálma Haraldsson og er ekki hræddur við hann og hans fólk," segir Birgir Jónsson, fyrrum forstjóri Iceland Express, en hann sagði upp störfum í gær eftir einungis tíu daga í starfi. Í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum í morgun segist hann knúinn til að tjá sig um yfirlýsingu stjórnar Iceland Express í gærkvöldi. Í henni sagði að Birgir hafi viljað ráða vini sína og ættingja inn í fyrirtækið. „Þegar á mann er ráðist með svona ómaklegum, ódýrum og ósönnum hætti þá verður maður að snúast til varnar og verja heiður sinn og sinna," segir Birgir í yfirlýsingunni. Í yfirlýsingunni lætur hann fylgja samskipti sín við Pálma Haraldsson, stjórnarformann fyrirtækisins, um að ráða konu sína til starfa. „Ég áframsendi því hér með póstsamskipti á milli mín og Pálma Haraldssonar frá síðust helgi þar sem hann lýsir sig samþykkan ráðningunni , bætti svo reyndar við þeim orðum á stjórnarfundi í London að "það finnist ekki frambærilegri kona á landinu til að gegna þessar stöðu". Engin ákvörðun hafði þó verið tekin af hennar hálfu um að koma til starfa," segir Birgir í yfirlýsingunni.Hægt er að lesa yfirlýsinguna í heild sinni hér fyrir neðan og tölvupóstsamskipti Birgis og Pálma Haraldssonar: Góðan dag, Stjórn Iceland Express hefur sent frá sér yfirlýsingu um ástæður þess að ég sagði óvænt upp störfum hjá félaginu í gær. Í henni tilgreina þeir að þeir hafi ekki viljað samþykkja að ég gerði skipulagsbreytingar á fyrirtækinu sem fælu m.a. í sér að ég réði "vini mína og ættingja" til starfa hjá félaginu. Þeir "leka" svo til fréttastofu RÚV í morgun að um hefði verið að ræða tillögu mína um að ráða inn sambýliskonu mína í starf hjá fyrirtækinu, eitthvað sem þeir hafi ekki getað samþykkt. Ég hef tekið skýrt fram að ég muni ekki tjá mig frekar um þetta mál í fjölmiðlum enda er það ekki til framdráttar fyrir neinn aðila, allra síst Iceland Express, sem mér er mjög umhugað um að skaðist ekki af þessar deilu. Samt er það þannig að þegar á mann er ráðist með svona ómaklegum, ódýrum og ósönnum hætti þá verður maður að snúast til varnar og verja heiður sinn og sinna. Ég áframsendi því hér með póstsamskipti á milli mín og Pálma Haraldssonar frá síðust helgi þar sem hann lýsir sig samþykkan ráðningunni , bætti svo reyndar við þeim orðum á stjórnarfundi í London að "það finnist ekki frambærilegri kona á landinu til að gegna þessar stöðu". Engin ákvörðun hafði þó verið tekin af hennar hálfu um að koma til starfa. Ég ítreka enn og aftur að ég vil ekki aðhafast neitt sem mun skaða félagið en hins vegar er rétt að minna alla á að ég er ekki fæddur í gær og hef langa reynslu af samskiptum við Pálma Haraldsson og er ekki hræddur við hann og hans fólk. Því eru öll atriðin sem við deilum um til með skriflegu samþykki hans og ég mun ekki hika við að verja hendur mínar og birta þau ef það reynist nauðsynlegt. Þó það sé einlæg ósk mín að þess gerist ekki þörf. Birgir Jónsson ATH: Ég hef þurrkað út samskipti okkar PH um aðrar mögulegar mannabreytingar í þessum póstum til að virða trúnað við hlutaðeigandi aðila.________________________________________From: Palmi Haraldsson ]Sent: Saturday, September 24, 2011 8:10 PMTo: Birgir JónssonSubject: RE:Biggi þú færð sama svarÉg treysti XXXXXX fullkomlega. Það þurfa einfaldlega að koma nýjir vendir semsópa best.Ég mun ekki vera mótfallinn því að taka XXXXX innKvpalmi-----Original Message-----From: Birgir Jónsson [mailto:BirgirJ@icelandexpress.is]Sent: 24. september 2011 21:07To: Palmi HaraldssonSubject: RE:Svo ég segi þér líka eins og er, þá vil ég fá XXXXXX þarna inn yfir crewið,þjónustu um borð og raunar til að sameina customer service í öllu félaginuí samvinnu við viðkomandi stjórnendur.Tengja það saman við skilaboðin úr markaðsvinnu ofl. Þannig að farþegarnirséu að upplifa heildar "experience" þegar þeir komast í snertingu viðokkur.Það sem böggar mig er það að hún er auðvitað konan mín og ég vil ekki fáneinn klíkustimpil.Hins vegar má heldur ekki sleppa besta fólkinu bara út af svona tengslum.Ef fólk sæi hennar prófíl á blaði án nafns þá er no brainer að fá hanaþarna inn:Hún er með:MBA með áherslu á mannauð og customer serviceBA í ferðamálafræði20 ára reynslu úr flugheiminumFyrirverandi yfirfreyja IEX sem þekkir IEX mjög vel.Eini mínusinn er að hún er konan mín.Á ég að láta það stoppa það?Það er eiginlega eitthvað sem þú þarft að ákveða, þetta stendur of nálægtmér.Biggi________________________________________From: Palmi Haraldsson ]Sent: Saturday, September 24, 2011 7:22 PMTo: Birgir JónssonSubject:SællGagnvart þessu XXXXXX-máli þa er það þannig að ef þú treystir honum í þettaþá er það hið besta málkvpalmi
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira