Vettel fremstur á ráslínu í tíunda skipti i ár 10. september 2011 13:37 AP mynd; Antonio Calanni
Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma í tímatökum í dag fyrir ítalska Formúlu 1 kappaksturinn á Monza brautinni á Ítalíu. Hann er því búinn að ná besta tíma í tíu tímatökum af þrettán á árinu. Lewis Hamilton náði næst besta tíma á McLaren og Jenson Button á samskonar bíl þriðja besta tíma. Formúlu 1 mótið á Monza fer fram á morgun. Red Bull liðið hefur verið með annanhvorn ökumanna sinna fremstan á ráslínu í öllum mótum ársins, en Mark Webber hjá Red Bull hefur þrívegis verið fremstur á ráslínu. Hann náði fimmta besta tíma í dag og varð á eftir Fernando Alonso á Ferrari, en liðið er staðsett á Ítalíu og því á heimavelli. Felipe Massa á Ferrari náði sjötta besta tíma í tímatökunni, en Vitaly Petroov á Renault varð sjöundi og er því framar á ráslínunni en Michael Schumacher sem er áttundi. Schumacher hefur unnið mótið á Monza fimm sinnum, oftar en nokkur annar. Liðsfélagi Schumacher, Nico Rosberg verður níundi á ráslínunni og Bruno Senna á Renault tíundi. Senna er að keppa í sínu öðru móti með Renault, en hann var sjöundi á ráslínunni í keppninni á Spa á dögunum. Ökumaður sem er fremstur á ráslínu hefur unnið 9 af síðustu 13 Formúlu 1 mótum á Monza brautinni, en kappaksturinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á morgun í opinni dagskrá. Útsending hefst kl. 11.30. Vettel er með gott forskot í stigakeppni ökumanna. Hann er með 259 stig, Webber er með 167, Alonso 157, Button 149 og Hamilton 146. Í keppni bílasmiða er Red Bull efst með 426 stig, McLaren 295 og Ferrari 231. Tímarnir úr tímatökunni eru frá autosport.com 1. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m22.275s 2. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m22.725s + 0.450 3. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m22.777s + 0.502 4. Fernando Alonso Ferrari 1m22.841s + 0.566 5. Mark Webber Red Bull-Renault 1m22.972s + 0.697 6. Felipe Massa Ferrari 1m23.188s + 0.913 7. Vitaly Petrov Renault 1m23.530s + 1.255 8. Michael Schumacher Mercedes 1m23.777s + 1.502 9. Nico Rosberg Mercedes 1m24.477s + 2.202 10. Bruno Senna Renault engin tími í lokumferðinni 11. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m24.163s + 1.249 12. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m24.209s + 1.295 13. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m24.648s + 1.734 14. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m24.726s + 1.812 15. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m24.845s + 1.931 16. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m24.932s + 2.018 17. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m25.065s + 2.151 18. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m25.334s + 1.358 19. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m26.647s + 2.671 20. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m27.184s + 3.208 21. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m27.591s + 3.615 22. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m27.609s + 3.633 23. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m28.054s + 4.078 24. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m28.231s + 4.255
Mest lesið Pólland valdi Ísland með sér á EM: Lægri reikningur og betri aðstaða Körfubolti Fetar í fótspor afa síns sem hann aldrei kynntist með landsliðinu Handbolti Rikki G ærðist þegar Hákon skoraði Fótbolti Ringulreið eftir að keppinautur Heimis sagði upp rétt fyrir einvígið Fótbolti Gamla Liverpool stjarnan grét þegar hann rifjaði upp hræðilegan tíma Enski boltinn Sleikti hálsinn á Humphries og gæti sætt rannsókn Sport Hákon um markið: Hann sá mig ekki en heyrði í mér Fótbolti Jusu Hákon lofi: „Hann hefur bara allt sem þjálfarar leita að“ Fótbolti NBA stjarnan Dončić kemur ekki til Íslands: „Fáum hann heim seinna“ Körfubolti Nýjasti landsliðsmaðurinn fagnaði sætinu með hauskúpuleik Handbolti Fleiri fréttir Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Sjá meira