Viðskipti erlent

Boeing 787 Dreamliner tilbúin

JHH skrifar
ANA fær fyrsta eintakið af vélinni.
ANA fær fyrsta eintakið af vélinni. Mynd/AFP.
Japanska flugfélagið ANA fær afhent fyrsta eintakið af Boeing 787 Dreamliner þann 25. September næstkomandi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum í gær. Þrjú ár eru síðan flugfélagið pantaði vélina auk 54 annarra eintaka af sömu gerð.

„Flugvélin er reiðubúin, ANA er reiðubúið og Boeing verksmiðjurnar eru reiðubúnar. Flugvélin markar upphaf nýs kafla í flugsögunni,“ segir framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Boeing, Jim Albaug, í yfirlýsingu.

Boeing hafði upphaflega sagt að þotan yrði afhent árið 2008 en fjölmörg vandamál komu í veg fyrir að það rættist.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×