Bara einn hefur unnið Einvígið tvö ár í röð - hvað gerir Birgir Leifur? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2011 12:00 Birgir Leifur á mótinu í fyrra. Mynd/Daníel
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 15. sinn á Nesvellinum í dag. Keppendur léku níu holu höggleik í morgun og klukkan eitt hefst svo Einvígið (shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu. Venju samkvæmt var ellefu af bestu kylfingum landsins boðið til leiks. Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er sigurvegari síðasta árs og mætir að sjálfsögðu til þess að verja titilinn. Birgir Leifur getur orðið aðeins annar kylfingurinn í fjórtán ára sögu þessa skemmtilega móts sem nær því að vinna tvö ár í röð. Magnús Lárusson er sá eini sem hefur varið titilinn en hann vann Einvígið þrjú ár í röð frá 2004 til 2006. Birgir Leifur er annar af tveimur kylfingum á mótinu í ár sem hafa unnið Einvígið áður en hinn er Björgvin Sigurbergsson sem vann Einvígið bæði 2001 og 2009.Þátttakendur 2011 Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG, Klúbbmeistari GKG Andri Þór Björnsson, GR, Klúbbmeistari GR Axel Bóasson, GK, Íslandsmeistari karla í högleik Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, Shoot-out meistari 2010 Björgvin Sigurbergsson, GK, Klúbbmeistari GK Ingi Rúnar Gíslason, GKJ, Klúbbmeistari GKJ Karlotta Einarsdóttir, NK, Klúbbmeistari NK Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, Íslandsmeistari kvenna í höggleik og klúbbmeistari GR Tinna Jóhannsdóttir, GK, Klúbbmeistari GKSigurvegarar frá upphafi 1997 - Björgvin Þorsteinsson 1998 - Ólöf María Jónsdóttir 1999 - Vilhjálmur Ingibergsson 2000 - Kristinn Árnason 2001 - Björgvin Sigurbergsson 2002 - Ólafur Már Sigurðsson 2003 - Ragnhildur Sigurðardóttir 2004 - Magnús Lárusson 2005 - Magnús Lárusson 2006 - Magnús Lárusson 2007 - Sigurpáll Geir Sveinsson 2008 - Heiðar Davíð Bragason 2009 - Björgvin Sigurbergsson 2010 - Birgir Leifur Hafþórsson
Golf Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Enski boltinn Landsliðsmaður handtekinn í London Enski boltinn Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Enski boltinn Fékk rauða spjaldið fyrir leik og ástæðan voru nærbuxurnar Fótbolti Allt í steik hjá Real og tveir sáu rautt Fótbolti Fleiri fréttir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira