Árásarmaðurinn er norskur 22. júlí 2011 20:53 Jens Stoltenberg á blaðamannafundi í kvöld.
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag. Fram kom í máli Storberget að 7 hefðu týnt lífi í höfuðborginni en óvíst væri hveru margir hefðu látist þegar karlmaður hóf að skjóta á fólk í Útey seinnipartinn. Árásarmaðurinn var handtekinn þar og er nú í yfirheyrslu. Storberget sagði manninn norskan ríkisborgara.
Hryðjuverk í Útey Noregur Tengdar fréttir Sprenging í Osló Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða. 22. júlí 2011 14:04 Stoltenberg: Noregur í grafalvarlegri stöðu Norska lögreglan hefur staðfest að Jens Stoltenberg forsætisráðherra er í öruggu skjóli. Stoltenberg segir sjálfur við norska ríkisútvarpið og staða Noregs sé grafalvarleg. 22. júlí 2011 18:04 Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. 22. júlí 2011 14:38 Forsætisráðherra Noregs í felum Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni. 22. júlí 2011 16:32 Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. 22. júlí 2011 20:33 Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. 22. júlí 2011 19:47 Óttast að sprengja sé í Útey Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið. 22. júlí 2011 18:17 Mikill ótti í Osló Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk. 22. júlí 2011 15:30 Allt að 30 myrtir í Útey Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig. 22. júlí 2011 19:06 Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. 22. júlí 2011 20:14 Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. 22. júlí 2011 15:56 Einn maður handtekinn vegna skotárásarinnar Lögreglan í Noregi hefur handtekið mann sem grunaður er um að bera ábyrgð á skotárásinni í Utøya í Noregi í dag. 22. júlí 2011 17:22 Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. 22. júlí 2011 17:51 Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. 22. júlí 2011 15:19 Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag. 22. júlí 2011 15:50 Mest lesið Þrír í vikulangt gæsluvarðhald Innlent Vaktin: Fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést skömmu síðar Innlent Hætti sér loksins út að leika og var laminn um leið Innlent Lögregla lýsir eftir manni Innlent Sýknaður af ákæru um að verða hjónum að bana Innlent Pútín í Kúrsk: Farið verði með úkraínska hermenn eins og hryðjuverkamenn Erlent Þrír í gæsluvarðhald vegna manndráps í Gufunesi Innlent Stórfelldur laxadauði í Berufirði Innlent Lýsir ofríki og andlegu ofbeldi Gunnars Smára Innlent Handtekinn á vafasömum forsendum og hótað brottflutningi Erlent Fleiri fréttir „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Gerir lítið úr tilkalli Dana til Grænlands Segist opinn fyrir vopnahléi en hafnar tillögu Trumps Vörpuðu sprengju á heimili leiðtoga Íslamsks jíhad Hélt stjúpsyni sínum föngnum í tuttugu ár Ráðgjafi Pútíns segir tillögu Trumps tilgangslausa Vonska vegna vambaráns áhrifavalds í Ástralíu Umhverfisvernd ekki lengur meðal markmiða EPA Saka Ísraela um kerfisbundin mannréttindabrot Rekin eftir að hafa neitað að endurnýja byssuleyfi Mels Gibson Wagnerliðar fremja ódæði í Malí: „Ég sá dauðann alls staðar“ Handtekinn á vafasömum forsendum og hótað brottflutningi Pútín í Kúrsk: Farið verði með úkraínska hermenn eins og hryðjuverkamenn Gamall mafíuforingi skotinn til bana í Grenoble Allir vígamenn drepnir og gíslatökunni lokið „Þjóðin er klofin varðandi hvers konar sjálfstæði hún vill“ Sátu með sprengjuvesti meðal gísla Fella hluta Amazon-frumskógarins vegna loftslagsráðstefnu COP Hörfa frá Kúrsk Var útskrifaður og lifði með gervihjarta í yfir 100 daga Rússar gefa lítið fyrir niðurstöðu fundar Bandaríkjanna og Úkraínu Tollar Trump á stál og ál taka gildi Demokraatit og Naleraq stærstir eftir kosningarnar á Grænlandi Úkraína samþykkir tillögu um vopnahlé Einn grunaður um manndráp vegna vítaverðrar vanrækslu Gaf ranglega í skyn að Úkraína bæri ábyrgð á árás á X Ættbálkaleiðtogar felldir í árás al-Shabaab Vart þverfótað fyrir erlendum fjölmiðlum á kjördag í Nuuk Tæplega tvö hundruð farþegar í gíslingu Páfi ekki lengur í bráðri lífshættu vegna lungnabólgu Sjá meira
Sprenging í Osló Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða. 22. júlí 2011 14:04
Stoltenberg: Noregur í grafalvarlegri stöðu Norska lögreglan hefur staðfest að Jens Stoltenberg forsætisráðherra er í öruggu skjóli. Stoltenberg segir sjálfur við norska ríkisútvarpið og staða Noregs sé grafalvarleg. 22. júlí 2011 18:04
Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. 22. júlí 2011 14:38
Forsætisráðherra Noregs í felum Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni. 22. júlí 2011 16:32
Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. 22. júlí 2011 20:33
Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. 22. júlí 2011 19:47
Óttast að sprengja sé í Útey Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið. 22. júlí 2011 18:17
Mikill ótti í Osló Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk. 22. júlí 2011 15:30
Allt að 30 myrtir í Útey Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig. 22. júlí 2011 19:06
Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. 22. júlí 2011 20:14
Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. 22. júlí 2011 15:56
Einn maður handtekinn vegna skotárásarinnar Lögreglan í Noregi hefur handtekið mann sem grunaður er um að bera ábyrgð á skotárásinni í Utøya í Noregi í dag. 22. júlí 2011 17:22
Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. 22. júlí 2011 17:51
Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. 22. júlí 2011 15:19
Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag. 22. júlí 2011 15:50